Fyrirtæki geta stofnað ótakmarkaðan fjölda fyrirtækjanotenda sem hafa aðgang að Alfreð Umsjón.
Til þess að bæta við notanda þarf aðili með stjórnenda aðgang að smella á Aðgangar í stikunni.
Smellt er á Nýr aðgangur og fyllt þar í reitina.
Velja þarf hlutverk fyrir nýja aðganginn: Stjórnandi eða Fulltrúi.
Stjórnandi
Stjórnandi hefur aðgang að öllum möguleikum í fyrirtækjaþjónustu Alfreðs. Þeir eru:
- Stofnun og umsjón með öllum auglýsingum (drög, opnar, lokaðar, geymdar)
- Aðgangur að úrvinnslukerfi umsókna
- Samskipti við umsækjendur í úrvinnslukerfi
- Stofnun og umsjón vinnustaðaprófíla
- Stofnun og umsjón aðganga
- Aðrar stillingar s.s. staðlaðir textar, upplýsingar um stofnfyrirtæki ofl.
- Tölfræði upplýsingar
Fulltrúi
Fulltrúi hefur aðeins takmarkaðri möguleika en stjórnandi.
- Aðgangur að tölfræðiupplýsingum fyrir allt kerfið
- Aðgangur að úrvinnslukerfi umsókna (ef honum er gefinn aðgangur að auglýsingunni af stjórnanda - Hvernig opna ég úrvinnsluborðið fyrir Fulltrúa?)
- Stofnun og umsjón vinnustaðaprófíla
Auka leyfi
- Má búa til auglýsingar:
- Getur búið til nýja auglýsingu
- Getur endurnýtt auglýsingu sem fulltrúinn hefur aðgang að
- Má skoða öll störf:
- Getur séð en ekki breytt listanum yfir allar auglýsingar, þá er átt við drög að auglýsingum, opnar, lokaðar og geymdar auglýsingar.
- Getur séð en ekki breytt grunnupplýsingum, s.s. birtingartíma, stofnanda auglýsingarinnar og verð auglýsingarinnar. (nema fulltrúa hafi verið gefinn aðgangur að þeirri auglýsingu af stjórnanda)
- Skoðað tölfræði af öllum birtum auglýsingum
- Opnað auglýsingu á vef (Hvernig auglýsingin mun birtast umsækjendum)
Til þess að opna aðgang að úrvinnslu umsókna fyrir fulltrúa má sjá leiðbeiningar hér: Hvernig opna ég úrvinnsluborðið fyrir Fulltrúa?