Áður en byrjað er að fara yfir atvinnuumsóknir getur verið gott að skrifa niður atriði sem skipta máli varðandi val á umsækjenda og leggja mat á það hversu miklu máli hvert atriði skiptir.
Til dæmis má nota hæfnismatið til að meta mikilvægi menntunar, reynslu, fyrri verkefna og svo frammistöðu í viðtölum.
Öll hæfnismöt sem hafa verið búin til er að finna undir Stillingar -> Hæfnismat. Þar er hægt að breyta, bæta og búa til ný hæfnismöt.
Einnig er hægt að bæta við hæfnismötum, breyta og bæta í ráðningarborði auglýsingar undir dálknum hæfnismat í ráðningarborðinu.
Til þess að nýta hæfnismatið við úrvinnslu umsókna þá verður að opna hvern og einn umsækjanda, velja hæfnismat og hefjast handa.
Meðaleinkunn hæfnismatsins kemur svo í úrvinnsluborðinu sem gefur þér betri yfirsýn á hæfni umsækjenda og auðveldar þér ákvörðunartöku um ráðningu.