Hægt er að flytja allar umsóknir úr úrvinnsluborði Alfreðs yfir í Excel með einum smelli. Einnig er hægt að sækja viðhengi og vídeóviðtöl.
Í úrvinnsluborði Alfreðs eru þrír punktar [•••] ofarlega hægra megin á síðunni. Smellt er á þennan hnapp og valið hvort hlaða eigi öllum umsóknum niður í Excel, hlaða niður öllum viðhengjum eða hlaða niður öllum vídeóviðtölum.
Hlaða niður í Excel
Þegar valið er "Hlaða niður í Excel" þá hleðst niður skrá með öllum upplýsingum sem eru á prófíl umsækjenda ásamt einkunnum úr hæfnismati umsækjanda.
Sækja viðhengi
Þegar valið er "Sækja viðhengi" þá sendist mappa með viðhengjum á netfang aðilans sem stofnaði auglýsinguna.
Sækja vídeóviðtöl
Þegar valið er "Sækja vídeóviðtöl" þá hleðst niður mappa með vídeóviðtölum.