> ## Knowledge Base Index
> Fetch the complete knowledge base index at: https://adstod.alfred.is/sitemap.xml
> Use this file to discover available pages before exploring further.
> Pure-Markdown content can be obtained by appending a '.md' suffix to the content URLs listed in the sitemap (without the trailing slash).

# Afrita umsókn á annað starf

Fyrirtæki geta **afritað umsóknir** og fært yfir á önnur úrvinnsluborð. Hægt er að færa umsóknir á úrvinnsluborð þeirra auglýsinga sem eru annað hvort **virkar** eða í **úrvinnslu**. 

Þessi virkni gefur kost á að nýta umsóknir til fulls, þó fyrirtækið sé með fleiri starfsauglýsingar í gangi í einu. 

Þessi möguleiki hentar einstaklega vel fyrir þau fyrirtæki sem eru með [Almenna umsókn](/is/article/almenn-umsokn-10curum/), því þá er hægt að **færa umsókn yfir í úrvinnsluborð** fyrir starf sem umsækjandinn væri tilvalinn í.

### Til þess að afrita umsókn

Smelltu á punktana þrjá hjá umsókn > **Afrita á annað starf**.

![](https://storage.crisp.chat/users/helpdesk/website/d7588bd1612b6800/component-14_mob96s.png)


**Veldu auglýsinguna** sem þú vilt afrita umsækjanda á.

![](https://storage.crisp.chat/users/helpdesk/website/d7588bd1612b6800/component-15_3comh9.png)


Þegar **umsækjandi hefur verið afritaður** er merki á spjaldinu sem gefur það til kynna.

![](https://storage.crisp.chat/users/helpdesk/website/c73308d2ca3c5800/ce6eb052-45a2-4233-a64c-2c3e14_1x0ur8j.png)