> ## Knowledge Base Index
> Fetch the complete knowledge base index at: https://adstod.alfred.is/sitemap.xml
> Use this file to discover available pages before exploring further.
> Pure-Markdown content can be obtained by appending a '.md' suffix to the content URLs listed in the sitemap (without the trailing slash).

# Aukaspurningar

Aukaspurningar eru tilvalin leið til að fá frekari upplýsingar frá umsækjendum, en þetta eru spurningar sem umsækjendur verða að svara til þess að senda umsókn.

### Búa til eða breyta aukaspurningum

Nýjar aukaspurningar eru búnar til í **Stillingar > Almennt** > **Aukaspurningar** > **Ný spurning**. Til að breyta aukaspurningu er smellt á appelsínugula pennann hægra megin við spurninguna. 

![](https://storage.crisp.chat/users/helpdesk/website/-/d/7/5/8/d7588bd1612b6800/component-5_mc70rq.png =787xauto)

Einnig er hægt að búa til aukaspurningar þegar verið er að **stofna auglýsingu**. Til að búa til nýja spurningu er skrifað spurninguna inn í reitinn, smellt á **Áfram** og valið tegund spurningar. Loks er smellt á **Vista**. 


![](https://storage.crisp.chat/users/helpdesk/website/d7588bd1612b6800/aukaspurningar_196tr1r.gif)

### Sía umsóknir eftir svörum við aukaspurningum

Aukaspurningar er frábær leið til þess að sía umsóknir.

Smellt er á **Aukaspurningar** síuna í Úrvinnsluborðinu og valið svör við spurningum til þess að sía eftir.

Smellt er á **Hreinsa** til þess að hreinsa síurnar.

### Er hægt að bæta aukaspurningum við eftir að auglýsing fer í birtingu?

Já, það er hægt að bæta þeim við eftir að auglýsing fer í birtingu en þær umsóknir sem berast fyrir það munu ekki vera með svör við þeim.