> ## Knowledge Base Index
> Fetch the complete knowledge base index at: https://adstod.alfred.is/sitemap.xml
> Use this file to discover available pages before exploring further.
> Pure-Markdown content can be obtained by appending a '.md' suffix to the content URLs listed in the sitemap (without the trailing slash).

# Bjóða í vídeóviðtöl

### Hvernig virka vídeóviðtöl?

Þú sendir spurningar á umsækjendur sem hafa 2 mínútur til þess að svara hverri spurningu með upptöku. Þú rennir svo yfir svörin þegar þér hentar og býður álitlegustu umsækjendunum í starfsviðtal.

## ![](https://storage.crisp.chat/users/helpdesk/website/446caaeb7c865800/70369e8b-8abb-42dd-90a1-30c4b9_bb4334.png)


### Kostir vídeóviðtala

*   Gríðarlegur tímasparnaður!
*   Frábær leið til að sía frá umsækjendur fyrir starfsviðtöl.
*   Þú getur farið yfir vídeóviðtölin þegar þér hentar.
*   Umsækjandinn getur tekið viðtalið í appinu þegar honum hentar, innan tilsetts skilafrests.
*   Tækifæri til að stækka hóp þeirra sem koma til greina í starfið því ferilskráin segir ekki allt. 

### Hvernig býð ég umsækjendum í vídeóviðtal?

Þú getur boðið umsækjendum í vídeóviðtal í **úrvinnsluborðinu** með því að smella á punktana þrjá [•••] > **Bjóða í vídeóviðtal.** 

### Hvernig bý ég til nýtt vídeóviðtal?

Þú getur búið til vídeóviðtal undir **Stillingar** > **Vídeóviðtöl.**

Í úrvinnsluborðinu getur þú einnig búið til nýtt vídeóviðtal með því að bjóða í vídeóviðtal (í stað þess að fara fyrst í stillingar).

### Gefa vídeóviðtölum einkunn

Þú getur gefið vídeóviðtölum einkunn í **Úrvinnsluborðinu**. Einkunnaskalinn er sýnilegur við hvert vídeóviðtal.

Ef margir fyrirtækjanotendur eru að vinna í úrvinnslu umsóknan og gefa einkun birtist meðaleinkun þeirra undir vídeóviðtala flipanum.

### Hljóðlaust vídeóviðtal

Það kemur einstaka sinnum fyrir að vídeóviðtöl í kerfinu séu hljóðlaus. Þá hefur umsækjandi verið að nota týpu af símtæki sem smáforritið styður ekki fullkomlega.

Hægt er að komast hjá því með því að hægri smella á myndbandið og velja **Save video as**. Þá er hægt að opna myndbandið úr þeirri möppu sem vistað var í.