> ## Knowledge Base Index
> Fetch the complete knowledge base index at: https://adstod.alfred.is/sitemap.xml
> Use this file to discover available pages before exploring further.
> Pure-Markdown content can be obtained by appending a '.md' suffix to the content URLs listed in the sitemap (without the trailing slash).

# Facebook-auglýsing

### Hvernig virkar þessi aukaþjónusta?

Auglýsingin þín birtist á Facebook og sérfræðingar Alfreðs greina markhóp auglýsingarinnar út frá áhugamálum, staðsetningu og tungumáli. Starfsauglýsingin nær þannig augum þeirra sem þú vilt ná til.

Miðað er á staðsetningu ásamt áhugamálum eins og mannauðsstjórnun, tækni eða hugbúnaðarþróun. T.d. ef auglýst er starf fyrir gagnasérfræðing er miðað á notendur með áhugamál eins og tækni, hugbúnaðarþróun, hugbúnaðarverkfræði og gagnavinnslu.

### Hvernig er miðað á markhóp?

Markhópurinn er greindur út frá áhugamálum, staðsetningu og tungumáli.

### Hvað eru Facebook-auglýsingar virkar lengi?

Facebook-auglýsingar eru virkar í u.þ.b. 5 daga.

### Hvernig birtist auglýsingin á Facebook?

Myndin inniheldur merki (lógó) fyrirtækisins, merki Alfreðs og titil auglýsingar. Auglýsingin birtist sem kostuð auglýsing frá Alfreð.  
  
Dæmi um hvernig Facebook-auglýsing lítur út:

![](https://storage.crisp.chat/users/helpdesk/website/ec1a4612f08c280/540dc2ab-9e27-44d4-9b96-272600_38xkvg.png)

### Af hverju finn ég ekki auglýsinguna?

Þetta er kostuð (e. sponsored) auglýsing svo það er ekki hægt að leita að henni heldur birtist hún einungis hjá markhópnum.

### Hvar sé ég tölur um birtingar og smelli á auglýsinguna?

Vinsamlegast sendið tölvupóst á [alfred@alfred.is](mailto:alfred@alfred.is) með heiti auglýsingar til þess að óska eftir tölum um birtingar og smelli.