> ## Knowledge Base Index
> Fetch the complete knowledge base index at: https://adstod.alfred.is/sitemap.xml
> Use this file to discover available pages before exploring further.
> Pure-Markdown content can be obtained by appending a '.md' suffix to the content URLs listed in the sitemap (without the trailing slash).

# Fylla út vinnustaðaprófíl

### Búa til vinnustaðaprófíl

* Alfreð býður fyrirtækjum upp á að stofna ótakmarkaðan fjölda vinnustaðaprófíla. 
* Vinnustaðaprófílar geta verið fyrirtæki og/eða rekstrareiningar.
* Tengja þarf hverja auglýsingu við vinnustaðaprófíl.
* Þú finnur vinnustaðaprófíla undir **Stillingar** > **Vinnustaðaprófílar** 
![](https://storage.crisp.chat/users/helpdesk/website/-/d/7/5/8/d7588bd1612b6800/screenshot-2026-05-26-at-10122_1ha4ptw.png)

### Eftirfarandi upplýsingar er hægt að birta á vinnustaðaprófíl:

##### Vinna í prófíl
*   **Lógó**: Merki vinnustaðarins (lógó) þarf að hlaða upp í formi eins og t.d. jpeg eða png. Hafa ber í huga að merkið birtist ávallt á hvítum grunni.
*   **Forsíðumynd**: Myndin birtist í öllum auglýsingum sem eru undir vörumerkinu og í vinnustaðaprófílnum. Besta stærð fyrir forsíðumynd er 1200 x 600 px.
*   **Nafn fyrirtækis**
*   **Heimilisfang**
*   **Símanúmer**
*   **Um vinnustaðinn**: Stuttur, lýsandi texti um vinnustaðinn. Hægt að bæta við slagorði, stofnári, fjölda starfsfólks og kynjahlutfalli.
*   **Vefsíða og samfélagsmiðlar**: Hér er hægt að bæta við hlekk sem leiðir t.d. inn á heimasíðu fyrirtækisins. Einnig er hægt að auglýsa samfélagsmiðla fyrirtækisins.
*   **Útlit prófíls**: Hægt er að bæta við einkennislit fyrirtækisins og myndum.
*   **Viðurkenningar og vottanir**: Ef það vantar viðeigandi vottun eða viðurkenningu í listann sem fyrirtækið þitt hefur fengið má senda beiðni á alfred@alfred.is og við skoðum það að bæta henni við.
*   **Viðfangsefni**
*   **Fríðindi í starfi**
*   **Tengdir vinnustaðaprófílar**: Hægt er að tengja aðra vinnustaðaprófíla til þess að öll störf skráð á þeim vinnustaðaprófílum birtist á aðal vinnustaðaprófílnum.  

##### Greiðsla reikninga
*   **Kennitala**: Ef reikningur á að berast annarri kennitölu en þeirri sem er skráð undir Stillingum.
*   **Netfang fyrir reikninga**: Hægt er að fá reikningana tengda vinnustaðaprófilnum senda á annað netfang en er skráð fyrir móttöku reikninga undir **Stillingum**.
*   **Nafn á viðtakanda reikninga**
*   **Deildir**: [Deildir](https://adstod.alfred.is/deildir) eru notaðar þegar fyrirtæki vill fá reikninga skipta upp eftir deildum, t.d. „markaðsdeild“ og „framleiðsludeild“.