> ## Knowledge Base Index
> Fetch the complete knowledge base index at: https://adstod.alfred.is/sitemap.xml
> Use this file to discover available pages before exploring further.
> Pure-Markdown content can be obtained by appending a '.md' suffix to the content URLs listed in the sitemap (without the trailing slash).

# Hæfnismat

Áður en byrjað er að fara yfir atvinnuumsóknir getur verið gott að skrifa niður atriði sem skipta máli varðandi val á umsækjenda og leggja mat á það hversu miklu máli hvert atriði skiptir.

Til dæmis má nota hæfnismatið til að meta mikilvægi menntunar, reynslu, fyrri verkefna og svo frammistöðu í viðtölum.

Að nota Hæfnismat er upplagt tækifæri fyrir tvo eða fleiri starfsmenn til að bera saman bækur og tryggja að hæfasti umsækjandinn sé ráðinn í auglýst starf.

### Hvernig bý ég til hæfnismat?

Öll hæfnismöt sem hafa verið búin til er að finna undir **Stillingar** > **Hæfnismat**. Þar er hægt að breyta, bæta og búa til ný hæfnismöt.

Einnig er hægt að bæta við hæfnismötum, breyta og bæta í ráðningarborði auglýsingar undir dálknum **hæfnismat** í ráðningarborðinu.

Dæmi um hæfnismat:

![](https://storage.crisp.chat/users/helpdesk/website/9939b02e7349a000/fdf41cc9-e413-4af0-8526-8726b3_1my4pb1.jpeg)

### Að nota hæfnismat við úrvinnslu umsókna

Til þess að nýta hæfnismatið við úrvinnslu umsókna er valin umsókn > **Hæfnismat.**

Þeir sem annast ráðninguna geta gefið umsækjendum einkunn á skalanum 0-10 fyrir hvern hluta hæfnismatsins. Meðaleinkunn hæfnismatsins kemur svo í úrvinnsluborðinu sem gefur þér betri yfirsýn á hæfni umsækjenda og auðveldar þér ákvörðunartöku um ráðningu. 

ATH. Umsækjendur sjá **ekki** hæfnismöt eða glósur sem þeim er gefið í úrvinnsluferlinu. Þetta er aðeins sýnilegt þeim notendum fyrirtækisins sem hafa aðgang að úrvinnslunni.