> ## Knowledge Base Index
> Fetch the complete knowledge base index at: https://adstod.alfred.is/sitemap.xml
> Use this file to discover available pages before exploring further.
> Pure-Markdown content can be obtained by appending a '.md' suffix to the content URLs listed in the sitemap (without the trailing slash).

# Hafna umsóknum


### Hafna mörgum umsóknum í einu

Efst í hægra horni dálksins er smellt á punktana þrjá [•••] og valið **Hafna umsóknum.**

Því næst birtist gluggi þar sem skilaboðin eru skrifuð.

Kerfið fyllir **#NAME#** út sjálfkrafa með nafni umsækjanda.

![](https://storage.crisp.chat/users/helpdesk/website/d7588bd1612b6800/frame-851_16dhoyz.png)

Hægt er að breyta stöðluðum texta svarbréfs undir **Stillingar > Stöðluð svarbréf**

Hafnaðar umsóknir verða óvirkar og hverfa af úrvinnsluborðinu. Það er þó hægt að nálgast þær með því að smella á **Óvirkar umsóknir** síuna til vinstri.