> ## Knowledge Base Index
> Fetch the complete knowledge base index at: https://adstod.alfred.is/sitemap.xml
> Use this file to discover available pages before exploring further.
> Pure-Markdown content can be obtained by appending a '.md' suffix to the content URLs listed in the sitemap (without the trailing slash).

# Hvernig sæki ég um starf með Alfreð prófíl?

Það hefur aldrei verið eins auðvelt að sækja um starf eins og með Alfreð prófílnum þínum.

Þegar notendur sjá **bláan Sækja um** takka á auglýsingum þýðir það að tekið er við umsóknum í gegnum Alfreð.

![](https://storage.crisp.chat/users/helpdesk/website/94f1098612201800/c8bcb8bc-daa1-4f21-b71d-c73798_10gp1f3.png)

Til þess að hægt sé að sækja um starf með Alfreð prófílnum þarf a.m.k. **80%** af upplýsingum í prófílnum að vera útfylltur. Auðvitað mælum við með að hann sé 100% útfylltur.

Ef fyrirtækið hefur óskað eftir því að umsækjendur svari **aukaspurningum** í umsóknarferlinu, þá bætast við stuttar spurningar sem auðvelt er að svara í appinu eða á vefnum.

Þegar umsókn hefur verið send inn er síðan hægt að fylgjast með stöðu hennar í **Innhólfinu**. Fyrirtæki geta síðan verið í samskiptum við umsækjendur í innhólfinu; boðið í viðtal, óskað eftir viðbótarupplýsingum o.s.frv.

Sé umsóknartakkinn **appelsínugulur** tekur fyrirtækið við umsóknum á ytri vefslóð og er notendum beint þangað ef smellt er á Sækja um.

![](https://storage.crisp.chat/users/helpdesk/website/1258d898c0d9fc00/22eed0a4-f2bb-4849-9613-fba4df_1wg4ao7.png)

Athugið: Ef auglýsing er með skráðan umsóknarfrest þá hafa aðilar tækifæri til að sækja um starfið til klukkan **23:59:59** þess dags.