> ## Knowledge Base Index
> Fetch the complete knowledge base index at: https://adstod.alfred.is/sitemap.xml
> Use this file to discover available pages before exploring further.
> Pure-Markdown content can be obtained by appending a '.md' suffix to the content URLs listed in the sitemap (without the trailing slash).

# Myndefni fyrir auglýsingar

# Forsíðumynd á auglýsingu
Nú er hægt að velja hvaða mynd birtist á auglýsingunni. 

###### Mynd af vinnustaðaprófíl
Ef það er forsíðumynd á vinnustaðaprófíl þá er hún valin sjálfkrafa sem forsíðumynd fyrir nýja auglýsingu. 

###### Ný mynd
Það er hægt að hlaða upp nýrri mynd og setja hana sem forsíðumynd auglýsingar.
Smelltu á pennann **efst í hægra horni á myndinni** til að breyta um forsíðumynd.

###### Stærð á forsíðumynd
Forsíðumynd þarf að vera minnst **600 x 300 px**.

# Myndefni fyrir samfélagsmiðla
Við stofnun auglýsingar er hægt að velja hvernig mynd birtist þegar þú eða einhver annar deilir auglýsingunni á samfélagsmiðlum, t.d. Facebook eða LinkedIn.

###### Lógó
Lógó er sjálfkrafa valið og þá birtist lógó vinnustaðarins ásamt stöðluðu sniðmáti ef auglýsingunni er deilt á samfélagsmiðlum.

###### Forsíðumynd
Það er einnig hægt að velja forsíðumyndina sem mynd fyrir samfélagsmiðla en þá birtist sú mynd þegar auglýsingunni er deilt.

###### Velja mynd
Þú getur líka hlaðið upp nýrri mynd ef þú vilt hafa ákveðið myndefni fyrir samfélagsmiðla.
Eigið myndefni fyrir samfélagsmiðla þarf að vera minnst **600 x 300 px**.

![](https://storage.crisp.chat/users/helpdesk/website/d7588bd1612b6800/image_ogtdnw.png)