> ## Knowledge Base Index
> Fetch the complete knowledge base index at: https://adstod.alfred.is/sitemap.xml
> Use this file to discover available pages before exploring further.
> Pure-Markdown content can be obtained by appending a '.md' suffix to the content URLs listed in the sitemap (without the trailing slash).

# Ráðningarborð

Þegar umsækjandi er merktur sem ráðinn í Úrvinnsluborði Alfreðs þá færist viðkomandi yfir á Ráðningarborð.

### Til hvers?

Ráðningarborð er yfirlit um **nýráðið starfsfólk**. Þar má sjá hvaða upplýsingar eru fyrir hendi og hvaða gögn vantar.

* Hægt er að flokka nýráðið starfsfólk eftir því hversu langt þau eru komin í ráðningarferlinu.
* Hægt er að bæta við dálkum og breyta um nafn á þeim.
* Hægt er að sía umsækjendur eftir dagsetningu ráðningar.
* Hægt er að fela umsóknir.

### Hver hefur aðgang?

Aðgangur að Ráðningarborði er hjá **Stjórnanda** sem getur veitt fulltrúum aðgang, t.d. fyrir launafulltrúa sem ganga þarf frá launamálum hins nýráðna starfskrafts.

### Veita Fulltrúa aðgang að Ráðningarborði

Opna Ráðningarborð > smella á **Aðgangur** efst í hægra horni og velja viðkomandi fulltrúa.  