> ## Knowledge Base Index
> Fetch the complete knowledge base index at: https://adstod.alfred.is/sitemap.xml
> Use this file to discover available pages before exploring further.
> Pure-Markdown content can be obtained by appending a '.md' suffix to the content URLs listed in the sitemap (without the trailing slash).

# Rafræn undirritun með Taktikal

Tenging Alfreðs og Taktikal felur í sér uppsetningu á ráðningarsamningi í umsjónarkerfi Alfreðs sem hægt er að senda beint til rafrænnar undirritunar.

Þegar [umsækjandi er merktur ráðinn](/is/article/merkja-umsaekjanda-radinn-dw3kfw/) í kerfi Alfreðs er hægt að senda viðkomandi beiðni um að bæta við ráðningarupplýsingum, s.s. kennitölu, upplýsingum um launareikning, lífeyrissjóð o.fl.

Að því loknu má yfirfara samninginn og senda sem PDF-skjal í gegnum kerfi Taktikal til undirritunar hjá báðum aðilum ráðningarsamningsins.  

Þessi lausn er hentug fyrir atvinnurekendur sem afgreiða fjölda ráðningarsamninga, auðveldar utanumhald og sparar tíma.

Innifalið í tengingu Alfreðs við Taktikal eru uppsetning á tveimur sniðmátum fyrir rafræna ráðningarsamninga.

### Gjaldskrá Alfreðs
* Tengigjald 20.000 kr. + vsk. (fyrir 2 sniðmát).
* Mánaðargjald fyrir tengingu við Alfreð er 3.500 kr. + vsk.
* Aukasniðmát 2.500 kr. + vsk.

Sniðmát fyrir ráðningarsamninga sendast á alfred@alfred.is
Óskir um aðgang að Taktikal sendast á hallo@taktikal.is