> ## Knowledge Base Index
> Fetch the complete knowledge base index at: https://adstod.alfred.is/sitemap.xml
> Use this file to discover available pages before exploring further.
> Pure-Markdown content can be obtained by appending a '.md' suffix to the content URLs listed in the sitemap (without the trailing slash).

# Rafræn undirskrift (pay-per-use)

Stakar undirskriftir á rafrænu formi eru frábær lausn fyrir smærri fyrirtæki og aðila sem aðeins þurfa endrum og sinnum að gera ráðningarsamning við nýtt starfsfólk. 

Þú greiðir einfaldlega fyrir notkunina í hvert skipti fyrir sig í stað þess að kaupa áskrift að þjónustunni.

### PDF er allt sem þarf

Til að senda skjöl í rafræna undirskrift þarf að hlaða þeim upp á **PDF-formati**. 

Opnaðu skjalið sem þú þarft að láta undirrita og breyttu því í PDF-skjal. Þú finnur leiðbeiningar um hvernig það er gert í ritvinnsluforritinu þínu hvort sem þú notar Word, Google Docs eða önnur forrit.

### Sækja og senda

Merktu umsækjanda sem [ráðinn](https://adstod.alfred.is/is/article/merkja-umsaekjanda-radinn-dw3kfw/) og veldu svo PDF-skjölin sem þú vilt senda nýja starfsmanninum til rafrænnar undirskriftar. Þú getur sent allt að **5 skjöl** til undirritunar við hverja ráðningu. 

### Velja tegund undirskriftar

Hægt er að velja þrjár tegundir undirskrifta til auðkenningar á undirritun skjala:

* [Með rafrænum skilríkjum](https://www.taktikal.is/rafraenar-undirskriftir?tab=Fullgildar)
* [Með símanúmeri og netfangi](https://www.taktikal.is/rafraenar-undirskriftir?tab=Standard)
* [Með netfangi](https://www.taktikal.is/rafraenar-undirskriftir?tab=Click-to-sign)
**
### Einfalt og öruggt

Rafræn undirskrift er einföld og örugg leið til að **skrifa undir ráðningarskjöl** sem krefjast þess að bæði vinnuveitendur og starfsfólk staðfesti samninga sín á milli.  

Alfreð sendir PDF-skjölin í gegnum **Taktikal** til rafrænnar undirritunar. Báðir aðilar ráðningarsamningsins fá skjölin í tölvupósti og skrifa undir rafrænt.  

Þú þarft ekki að prenta, skanna eða póstleggja neitt og sparar þannig bæði tíma og peninga.