> ## Knowledge Base Index
> Fetch the complete knowledge base index at: https://adstod.alfred.is/sitemap.xml
> Use this file to discover available pages before exploring further.
> Pure-Markdown content can be obtained by appending a '.md' suffix to the content URLs listed in the sitemap (without the trailing slash).

# Síur í úrvinnsluborði

Úrvinnsluborð Alfreðs býður upp á **síur** sem auðvelda flokkun umsókna.

Síurnar eru aðgengilegar lengst til vinstri í Úrvinnsluborðinu.

### Óvirkar umsóknir og umsóknir með Ný skilaboð
* Hakaðu í **Óvirkar umsóknir** til að sjá umsóknir sem hafa verið hafnaðar eða dregnar til baka.
* Hakaðu í **Ný skilaboð** til að sjá umsóknir með ólesnum skilaboðum.

![](https://storage.crisp.chat/users/helpdesk/website/d7588bd1612b6800/image_20xepp.png)

### Tungumál
Hægt er að sía eftir tungumálakunnáttu sem umsækjendur eru með á prófílnum sínum. Valin er lágmarkshæfni fyrir tungumálið/n.

![](https://storage.crisp.chat/users/helpdesk/website/d7588bd1612b6800/image_1vf4cn.png)

### Aldur
Sýnir umsækjendur sem passa við lágmarksaldur sem er valin.

![](https://storage.crisp.chat/users/helpdesk/website/d7588bd1612b6800/image_1jklv8b.png)

### Hæfni
Sýnir umsækjendur sem gáfu sér einkunn á þeim skala sem er valinn. Hægt er að draga punktana til að velja einkunnaskala.

![](https://storage.crisp.chat/users/helpdesk/website/d7588bd1612b6800/image_3il58l.png)

### Aukaspurningar
**Ef** auglýsingin var stofnuð með aukaspurningu/m er hægt að sía út umsóknir hér eftir því hvernig umsækjendur svöruðu.
**Ath**. ekki er hægt að sía eftir eru spurningum sem bjóða upp á frjálst textasvar (opin spurning).
[Sjá nánar um aukaspurningar.](https://adstod.alfred.is/is/article/aukaspurningar-5cpewc/)


![](https://storage.crisp.chat/users/helpdesk/website/d7588bd1612b6800/image_pe4i7j.png)



### Menntun
Hægt er að sía eftir menntun sem er skráð á prófíl umsækjenda. Ath. ekki er um að ræða hæsta menntunarstig. Umsækjendur birtast út frá þeirri menntun sem skráð er á prófílnum þeirra.

![](https://storage.crisp.chat/users/helpdesk/website/d7588bd1612b6800/image_zvyri9.png)

### Dagur umsóknar
Til að sía eftir dagsetningu umsóknir, sjá t.d. þær sem bárust síðasta sólarhringinn.

![](https://storage.crisp.chat/users/helpdesk/website/d7588bd1612b6800/image_ozlwig.png)

### Hæfnismat
**Ef** hæfnismat er bætt við á auglýsinguna er hægt að sía umsækjendur eftir einkunn úr hæfnismati.
[Sjá nánar um hæfnismat.](https://adstod.alfred.is/is/article/haefnismat-kci8k4/)

