> ## Knowledge Base Index
> Fetch the complete knowledge base index at: https://adstod.alfred.is/sitemap.xml
> Use this file to discover available pages before exploring further.
> Pure-Markdown content can be obtained by appending a '.md' suffix to the content URLs listed in the sitemap (without the trailing slash).

# Skipta reikningum niður á deildir

Deildir eru notaðar þegar fyrirtæki vill fá reikninga senda fyrir ákveðnar **deildir** innan sama vinnustað, t.d. fyrir markaðsdeild annars vegar og framleiðsludeild hins vegar. Einnig hægt að nota ef að það þarf að vera **verknúmer** eða önnur **skýring** á öllum reikningum.

### Hvernig bý ég til deildir?

Hægt er að stofna **Deildir** undir hverjum **Vinnustaðaprófíl**.

Farið er í **Breyta** á vinnustaðaprófílnum sem auglýsingin á að vera á. 

![](https://storage.crisp.chat/users/helpdesk/website/d7588bd1612b6800/screenshot-2024-04-11-at-13275_18xsfry.png)

Þar undir **Greiðsla reikninga** er hægt að breyta núverandi deildum eða bæta við nýrri.

![](https://storage.crisp.chat/users/helpdesk/website/d7588bd1612b6800/screenshot-2024-04-11-at-13290_6o8po6.png)

### Hvernig nota ég deildir?

Þegar auglýsing er stofnuð og **Vinnustaðaprófíll** er valinn birtist nýr felligluggi með þeim **deildum** sem hafa verið stofnaðar fyrir þann Vinnustaðaprófíl.

![](https://storage.crisp.chat/users/helpdesk/website/d7588bd1612b6800/screenshot-2024-04-11-at-13333_m3z3km.png)


ATH. Deildir birtast ekki á auglýsingum og eru eingöngu notaðar í þeim tilgangi að reikningur fyrir auglýsingunni berist á rétta deild og/eða aðila innan fyrirtækisins.

