> ## Knowledge Base Index
> Fetch the complete knowledge base index at: https://adstod.alfred.is/sitemap.xml
> Use this file to discover available pages before exploring further.
> Pure-Markdown content can be obtained by appending a '.md' suffix to the content URLs listed in the sitemap (without the trailing slash).

# Staðfesta prófíl með rafrænum skilríkjum

Sum störf krefjast rafrænnar auðkenningar, og birtist slíkt í umsóknum eins og myndin sýnir að neðan:

![](https://storage.crisp.chat/users/helpdesk/website/-/d/7/5/8/d7588bd1612b6800/1a_1vdkeew.png)

Þegar prófíll er auðkenndur með rafrænum skilríkjum þá uppfærist nafn og fæðingardagur og þeim upplýsingum er ekki hægt að breyta á meðan prófíll er auðkenndur.

# Tvær mismunandi leiðir til að staðfesta prófíl með rafrænum skilríkjum

### Ferlið með símanúmeri

A) Til þess að staðfesta aðganginn þinn með rafrænum skilríkjum þarf að skrá símanúmer og velja svo ‘Auðkenna’. Í kjölfarið ætti þér að berast beiðni um samþykki með rafrænum skilríkjum.

![](https://storage.crisp.chat/users/helpdesk/website/-/d/7/5/8/d7588bd1612b6800/1b_e7tbh2.png)


B) Núna getur þú sótt um störf sem krefjast rafrænna skilríkja.

![](https://storage.crisp.chat/users/helpdesk/website/-/d/7/5/8/d7588bd1612b6800/1c_1hpjndb.png)
![](https://storage.crisp.chat/users/helpdesk/website/-/d/7/5/8/d7588bd1612b6800/1d_16frc6y.png)

### Ferlið með Auðkenni appinu

A) Ef að þú ert ekki með rafræn skilríki í símanum, en ert með íslenska kennitölu er hægt að auðkenna sig með **Auðkenni** appinu. Til þess þarf að vera til aðgangur hjá **Auðkenni** sem er skráður með kennitölunni sem merkt er í reitinn að neðan.

![](https://storage.crisp.chat/users/helpdesk/website/-/d/7/5/8/d7588bd1612b6800/2a_1ekshdf.png)
B) Þegar umsækjandi er búinn að stofna aðgang hjá **Auðkenni** og skráir kennitölu sína, þá birtist beiðnar gluggi um að klára auðkenningu í **Auðkenni** appinu. 

![](https://storage.crisp.chat/users/helpdesk/website/-/d/7/5/8/d7588bd1612b6800/2b_6dvwtf.png)
C) Að auðkenningu lokinni kemur upp gluggi sem staðfestir að ferlið hafi heppnast.

![](https://storage.crisp.chat/users/helpdesk/website/-/d/7/5/8/d7588bd1612b6800/2c_1capsgd.png)
###### ATH: Ef nafni hefur verið breytt í þjóðskrá en gamalt nafn kemur inn þá þarf að láta afturkalla þau og sækja ný rafræn skilríki á næstu þjónustustöð