> ## Knowledge Base Index
> Fetch the complete knowledge base index at: https://adstod.alfred.is/sitemap.xml
> Use this file to discover available pages before exploring further.
> Pure-Markdown content can be obtained by appending a '.md' suffix to the content URLs listed in the sitemap (without the trailing slash).

# Stofna námskeiðsauglýsingu

Smelltu á **Námskeiðsauglýsingar**  → **+ Ný auglýsing** efst til hægri. Fylltu út lýsingu á námskeiðinu og veldu myndefni. Fylla þarf út alla stjörnumerkta reiti til að hægt sé að birta auglýsinguna. Þegar auglýsingin er tilbúin smellir þú á **Birta**. 

Hægt er að tagga námskeið við fleiri en einn flokk, til dæmis: [Heilsa og lífstíll] + [Sjálfsefling í starfi] o.s.frv.

![](https://storage.crisp.chat/users/helpdesk/website/ded339e18bd9d000/e7a85582-720c-4d2d-a9a1-c08fea_c3st8l.png)

### Myndefni

**Forsíðumynd** birtist á síðu fyrir námskeiðið sjálft eftir að smellt hefur verið á auglýsinguna.  
Myndhlutfall er 2:1.  
Sjá dæmi hvernig forsíðumynd birtist:

![](https://storage.crisp.chat/users/helpdesk/website/a63abb2f37aef000/97b98f38-94d2-4c66-99a8-62feea_1imtt18.png)

**Mynd á auglýsingaspjaldi** birtist á spjaldinu fyrir námskeiðið.  
Myndhlutfall er 4:3.   
Sjá dæmi um mynd á auglýsingaspjaldi:

![](https://storage.crisp.chat/users/helpdesk/website/635f44c42eab8c00/e8b4d2ce-dd3a-410f-b6dc-19e7a8_bpu1uc.png)

Þetta má vera sama myndin.

### Birtingartími

Þú velur hversu marga daga auglýsingin á að birtast og **greiðir þá daga fyrirfram.**

#### Lengja birtingatíma

Ef þú vilt lengja birtingartíma auglýsingarinnar þá velur þú viðkomandi námskeið, smellir á **Breyta** og bætir þeim dögum við birtingartímann sem þú vilt.

### Birta auglýsingu

Þú þarft að smella á **Birta** til að búa til auglýsinguna. Ef þér snýst hugur og hættir við er hægt að smella á **Loka**. Gáðu að því að þá vistast upplýsingarnar ekki heldur þarf að byrja aftur frá grunni.

  
[https://alfred.is/namskeid](https://alfred.is/namskeid)