> ## Knowledge Base Index
> Fetch the complete knowledge base index at: https://adstod.alfred.is/sitemap.xml
> Use this file to discover available pages before exploring further.
> Pure-Markdown content can be obtained by appending a '.md' suffix to the content URLs listed in the sitemap (without the trailing slash).

# Stofna nýjan notanda á fyrirtækjaaðgang

## Stofna notanda
 **Fyrirtæki geta stofnað ótakmarkaðan fjölda notenda sem hafa aðgang að Alfreð Umsjón.**

Til þess að **bæta við notanda** þarf aðili með stjórnenda aðgang að smella á **Stillingar** efst í stikunni og velja **Notendur**. Þar inni er smellt á **Nýr notandi** og fyllt út upplýsingar í reitina.

![](https://storage.crisp.chat/users/helpdesk/website/-/d/7/5/8/d7588bd1612b6800/component-4_1q130ju.png)

Velja þarf **hlutverk** fyrir aðganginn, sjá nánar: [Aðgangsstýring - Stjórnandi og fulltrúi.](/is/article/adgangsstyring-stjornandi-fulltrui-mannaudur-jql052/)

## Staðfesta netfang
Þegar notandi er stofnaður sendist tölvupóstur á netfang notandans með hlekk þar sem notandinn getur staðfest netfangið sitt og búið til sitt fyrsta lykilorð. **Staða** doppan hjá notandanum er blá þegar notandinn er stofnaður en þegar netfangið hefur verið staðfest þá verður notandinn virkur og doppan verður græn.

![](https://storage.crisp.chat/users/helpdesk/website/-/d/7/5/8/d7588bd1612b6800/screenshot-2026-08-24-at-14103_1wxzc6j.png =1320xauto)
