> ## Knowledge Base Index
> Fetch the complete knowledge base index at: https://adstod.alfred.is/sitemap.xml
> Use this file to discover available pages before exploring further.
> Pure-Markdown content can be obtained by appending a '.md' suffix to the content URLs listed in the sitemap (without the trailing slash).

# Stutt auglýsing

**Stutt auglýsing **miðar að því að koma helstu upplýsingum hratt og örugglega til skila.

### Ný auglýsing

Smelltu á **Ný auglýsing** takkann undir Auglýsingar í umsjónarkerfinu.

Veldu **prófíl** sem á að tengjast auglýsingunni. 
* Ef fyrirtækið er bara með einn prófíl er hann sjálfkrafa valinn.
* Ef þú hefur ekki stofnað auglýsingu áður eða vilt búa til nýjan vinnustaðaprófíl byrjar þú á því að skrá helstu upplýsingar um vinnustaðinn (nafn, lógó og lýsingu).

### Skref 1: Búa til auglýsingu

Veldu **Stutt auglýsing** efst og haltu svo áfram að fylla út auglýsinguna.

![](https://storage.crisp.chat/users/helpdesk/website/d7588bd1612b6800/screenshot-2023-09-27-at-10034_17zm5g0.png)

###### Fylltu inn nauðsynlegar upplýsingar um starfið.

* Myndefni í auglýsingu: veldu hvaða mynd birtist efst í auglýsingunni og hvernig auglýsingin birtist þegar þú eða aðrir deila auglýsingunni á samfélagsmiðlum.
* Titill auglýsingar: Settu inn lýsandi starfstitil.
* Starfslýsing: Skrifaðu starfslýsingu. Þú getur einnig bætt við nýjum flokki með þínum titli og texta.
* Tungumál: Að merkja starfsauglýsingu með tungumálakunnáttu hjálpar umsækjendum að sjá hvaða hæfnisviðmið þarf að uppfylla.
* Starfsstöð: Hvar er starfið staðsett?
* Starfstegund: Fullt starf, hlutastarf, o.s.frv.
* Starfsmerkingar: Veldu 1-5 starfsmerkingu. Alfreð sendir öllum notendum sem vakta þessar starfsmerkingar skilaboð um að starfið sé laust.

### Skref 2: Birtingatími og úrvinnsla

###### Hvernig viltu taka á móti umsóknum?

Veldu hvort þú viljir taka á móti umsóknum í **gegnum Alfreð** eða með **vefslóð**. 

Ef þú velur að nota Alfreð þá getur þú tengt **aukaspurningar** við auglýsinguna.

###### Birtingartími og úrvinnsla

Veldu dag til að birta auglýsinguna og umsóknarfrest. Athugið að ef umsóknarfrestur er valinn er **ekki æskilegt** að stytta hann eftir á. Sé enginn umsóknarfrestur valinn má taka auglýsingu úr birtingu hvenær sem er. 

Úrvinnslutími: Alfreð upplýsir umsækjendur um áætlaðan úrvinnslutíma. 

### Skref 3: Aukaþjónusta

Síðasta skrefið - hér er hægt að kaupa **aukaþjónustu** áður en þú heldur áfram í **birtingu**.

  
[https://alfred.is/](https://alfred.is/)