> ## Knowledge Base Index
> Fetch the complete knowledge base index at: https://adstod.alfred.is/sitemap.xml
> Use this file to discover available pages before exploring further.
> Pure-Markdown content can be obtained by appending a '.md' suffix to the content URLs listed in the sitemap (without the trailing slash).

# Sviðsljós

### Sviðsljós færir þér og þínum vinnustað/starfsauglýsingu mesta sýnileika sem í boði er hjá Alfreð.

Auglýsingaborðinn birtist í sjö daga á besta stað, milli nýjustu starfanna á Alfreð. 

Sviðsljós er því áberandi hagkvæm leið til að kynna vinnustaði og störf og laða að hæfileikaríkt starfsfólk.

* Upplausn: Minnst 970x250 pixlar
* Birtingartími: 7 dagar
* Verð: 52.900 kr. + vsk.

Alfreð mælir með því að velja myndefni í góðri upplausn sem lýsir starfinu eða vinnustaðnum sem best.

### Hvernig kem ég starfsauglýsingu í Sviðsljós?

Búðu til auglýsingu eða veldu auglýsingu í birtingu sem þú vilt koma í Sviðsljósið. Þar er í boði **Aukaþjónusta** og undir henni má velja **Sviðsljós** til að auglýsa starfið. Athugið að þetta Sviðsljós hættir að birtast ef viðkomandi starfsauglýsing er tekin úr birtingu.

![](https://storage.crisp.chat/users/helpdesk/website/d7588bd1612b6800/aukatjonusta_13kild6.png)

![](https://storage.crisp.chat/users/helpdesk/website/-/d/7/5/8/d7588bd1612b6800/screenshot-2026-08-04-at-09445_10w2ds.png)


### Hvernig kem ég vinnustað í Sviðsljós?

Í stikunni efst ferðu í **Vinnustaðaprófílar** og smellir  á hnappinn **Kaupa meiri sýnileika á Alfreð** undir vinnustaðaprófílnum sem þú vilt auglýsa. Alfreð mælir með því að fylla vel út í prófílinn og uppfæra helstu upplýsingar um vinnustaðinn fyrir birtingu í Sviðsljósi.


![](https://storage.crisp.chat/users/helpdesk/website/d7588bd1612b6800/svidsljos-3_1c5hl0m.png)


Veldu **mynd** sem lýsir þínum vinnustað vel. Ef þú vilt skipta um prófíl getur þú gert það í **Vinnustaðaprófíll** fellilistanum.

![](https://storage.crisp.chat/users/helpdesk/website/-/d/7/5/8/d7588bd1612b6800/screenshot-2026-08-04-at-09432_xtcq7m.png)

Til að skoða hvernig Sviðsljósið mun birtast á milli nýrra starfa á Alfreð getur þú smellt á **Forskoða** í efra hægra horninu. 

Þegar Sviðsljósið er tilbúið til birtingar getur þú smellt á **Kaupa** í neðra hægra horni. 

[Sjá nánar um Sviðsljós](https://alfred.is/svidsljos)