> ## Knowledge Base Index
> Fetch the complete knowledge base index at: https://adstod.alfred.is/sitemap.xml
> Use this file to discover available pages before exploring further.
> Pure-Markdown content can be obtained by appending a '.md' suffix to the content URLs listed in the sitemap (without the trailing slash).

# Tenging við H3 kerfi Advania

Með H3 kerfistengingunni í Alfreð getur þú óskað eftir upplýsingum um launareikning, stéttarfélag, lífeyrissjóð o.s.frv. þegar þú merkir umsækjenda sem ráðinn. Þá eru upplýsingarnar fluttar sjálfkrafa yfir í mannauðskerfi H3.

### Að tengjast H3

Til þess að tengjast H3 þarf að útvega tengislóðina, notendanafn og lykilorð úr H3. Þegar þær upplýsingar eru komnar má senda tengislóðina á alfred@alfred.is til að hægt sé að samþykkja hana í kerfinu. Þegar það er komið fáið þið sendan hlekk til að fylla út tengiupplýsingarnar og virkja tenginguna í Alfreð. 

### Að færa umsækjanda yfir í H3

1.  [Merkja umsækjanda sem ráðinn](/is/article/merkja-umsaekjanda-radinn-dw3kfw/) og óska eftir ráðningarupplýsingum.

2.  Eftir að umsækjandi hefur sent inn upplýsingar þá er smellt á áfram takkann við **H3 - Mannauðskerfi Advania**.

![](https://storage.crisp.chat/users/helpdesk/website/d7588bd1612b6800/component-22_ritzgi.png)

3.  Næst þarf að fylla út í alla stjörnumerkta reiti og senda svo upplýsingarnar **áfram** í H3.
![](https://storage.crisp.chat/users/helpdesk/website/c0a4d116835b2800/d3e57b5c-f599-4708-8c71-42a3c4_h58tti.png)

### Verð
*   Tengi- og uppsetningargjald sem miðast við 4 tíma af útseldri vinnu.
*   Mánaðargjald fyrir tenginguna við Alfreð er 3.500 kr. + vsk.