> ## Knowledge Base Index
> Fetch the complete knowledge base index at: https://adstod.alfred.is/sitemap.xml
> Use this file to discover available pages before exploring further.
> Pure-Markdown content can be obtained by appending a '.md' suffix to the content URLs listed in the sitemap (without the trailing slash).

# Tenging við Kjarna kerfi Origo

Með Kjarna kerfistengingunni í Alfreð getur þú óskað eftir upplýsingum um launareikning, stéttarfélag, lífeyrissjóð o.s.frv. þegar þú merkir umsækjenda sem ráðinn. Þá eru upplýsingarnar fluttar sjálfkrafa yfir í mannauðskerfi Kjarna.

### Að tengjast Kjarna

Til þess að tengjast Kjarna þarf að útvega tengislóðina, notendanafn og lykilorð úr Kjarna. Þegar þær upplýsingar eru komnar má senda tengislóðina á alfred@alfred.is til að hægt sé að samþykkja hana í kerfinu. Þegar það er komið fáið þið sendan hlekk til að fylla út tengiupplýsingarnar og virkja tenginguna í Alfreð.


### Að færa umsækjanda yfir í Kjarna

1. [Merkja umsækjanda ráðinn](/is/article/merkja-umsaekjanda-radinn-dw3kfw/) og óska eftir ráðningarupplýsingum.
2. Eftir að umsækjandi hefur sent inn upplýsingar þá er smellt á áfram takkann við **Kjarni - Mannauðskerfi Origo**

![](https://storage.crisp.chat/users/helpdesk/website/-/d/7/5/8/d7588bd1612b6800/screenshot-2026-10-05-at-15163_17gw78t.png =674xauto)

3. Næst þarf að fylla út í alla stjörnumerkta reiti og senda svo upplýsingarnar **áfram** í Kjarna
![](https://storage.crisp.chat/users/helpdesk/website/-/d/7/5/8/d7588bd1612b6800/screenshot-2026-10-05-at-15233_1riiozr.png =666xauto)

### Að sækja auglýsingar úr Kjarna

Þegar búið er að setja upp Kjarna-tengingu er hægt að sækja auglýsingar úr Kjarna. Þetta er gert með því að smella á **Ný auglýsing** > **Sækja úr Kjarna**.

![](https://storage.crisp.chat/users/helpdesk/website/d7588bd1612b6800/component-18_pyjo91.png)

Þá birtist listi af öllum **virkum** auglýsingum í Kjarna sem ekki er búið að færa yfir í Alfreð.

![](https://storage.crisp.chat/users/helpdesk/website/d7588bd1612b6800/kjarni_bxshs4.png)

**Veldu** auglýsinguna úr listanum sem þú vilt birta á Alfreð. Þá opnast hún og helstu upplýsingar eru færðar inn í auglýsinguna, en klára þarf að fylla inn í nauðsynlega reiti svo hægt sé að **birta** hana.

### Verð
* Mánaðargjald fyrir tenginguna við Alfreð er 3.500 kr. + vsk.
* Aðstoð við uppsetningu er í útseldri vinnu.