> ## Knowledge Base Index
> Fetch the complete knowledge base index at: https://adstod.alfred.is/sitemap.xml
> Use this file to discover available pages before exploring further.
> Pure-Markdown content can be obtained by appending a '.md' suffix to the content URLs listed in the sitemap (without the trailing slash).

# Tungumál í hæfniskröfum


### Bæta við tungumálakunnáttu á auglýsingu

Að merkja starfsauglýsingu með tungumálakunnáttu hjálpar umsækjendum að sjá hvaða **hæfnisviðmið** þarf að uppfylla. 

Veldu þau **tungumál** sem þarf í starfið ásamt **getustigi**. \*\*\*\*

|| Veldu hvort tungumálið sé nauðsynlegt eða valkvætt. Nauðsynlegt þýðir að ekki er hægt að sækja um starf nema uppfylla tungumálakunnáttu.

![](https://storage.crisp.chat/users/helpdesk/website/d7588bd1612b6800/frame-853-2_1l10stc.png)

Ef starfið krefst **ekki** sérstakrar tungumálakunnáttu er hægt að haka í þann valkost.

![](https://storage.crisp.chat/users/helpdesk/website/d7588bd1612b6800/screenshot-2024-04-23-at-10564_1dqqk4r.png)
Kröfur um æskilega tungumálakunnáttu sjást þar með skýrt á **auglýsingunni**. 

![](https://storage.crisp.chat/users/helpdesk/website/d7588bd1612b6800/frame-854-1_1rld3c9.png)

### Sía eftir tungumálakunnáttu

Í **úrvinnsluborðinu** er hægt að **sía** umsækjendur eftir **tungumálakunnáttu** og **lágmarkshæfni** og greina hvaða umsóknir uppfylla hæfnisviðmið starfsauglýsingarinnar. 
 
![](https://storage.crisp.chat/users/helpdesk/website/d7588bd1612b6800/image_axupmn.png)

Hér eru upplýsingar um **tungumálakvarðann** sem hægt er að styðja sig við til að velja viðeigandi **tungumálakunnáttu.**

### Byrjandi
Kann lítið sem ekkert og er rétt að byrja að læra málið.

### Grunnfærni
Þekkir algeng orð og getur notað einfaldar setningar í málinu.  

### Meðalhæfni
Skilur flest orð og getur haldið uppi samræðum á þessu máli. 

### Mjög góð
Getur lesið, skrifað og tjáð sig um margvísleg málefni á þessu máli.

### Framúrskarandi
Hefur sterk tök á málinu, getur tjáð sig í ræðu og riti og unnið með tæknilega flókin hugtök og sérfræðimál.

[Að búa til auglýsingu](/is/article/ad-bua-til-auglysingu-1753brb/)