> ## Knowledge Base Index
> Fetch the complete knowledge base index at: https://adstod.alfred.is/sitemap.xml
> Use this file to discover available pages before exploring further.
> Pure-Markdown content can be obtained by appending a '.md' suffix to the content URLs listed in the sitemap (without the trailing slash).

# Umsóknarfrestur eða enginn umsóknarfrestur?

## Við gerð auglýsinga þarf annað hvort að velja dagsetningu umsóknarfrests eða velja að hafa engan umsóknarfrest.

### Umsóknarfrestur

Ef þú birtir auglýsingu með umsóknarfresti þá er **ekki æskilegt** að fyrirtækið **stytti** hann eða **slökkvi** á auglýsingunni áður en umsóknarfresturinn rennur út.

Það er mikilvægt að fyrirtæki virði umsóknarfrestinn sem þau birta upphaflega. Ástæðan fyrir þessu er að stór hópur fólks fær tilkynningu um starfið þar sem umsóknarfrestur er auglýstur og margir þeirra stilla á áminningu svo þeir nái að sækja um áður en fresturinn rennur út.

Ef þú vilt [framlengja umsóknarfrestinn](/is/article/framlengja-umsoknarfrest-uw23vt/) getur þú gert það inn í Umsjón.

Umsóknarfrestur má vera allt að 42 dagar eða **6 vikur**. Dagsetning umsóknarfrests er **seinasti** dagur sem aðilar geta sótt um starfið. Aðilar hafa því tækifæri til að sækja um starfið til klukkan **23:59:59** þess dags.

### Enginn umsóknarfrestur

Ef þú birtir auglýsingu án umsóknarfrests þá geturðu **tekið auglýsinguna úr birtingu** þegar þér hentar eða leyft henni að lifa út hámarkið, 6 vikur eða 42 daga.

Einnig geturðu **sett umsóknarfrest eftir á** en þegar dagsetning er valin þá er ekki æskilegt að loka auglýsingunni fyrir þá dagsetningu.

Til þess að [loka auglýsingu](/is/article/loka-auglysingu-1u86n4j/) sem hefur engann umsóknarfrest er smellt á litlu þrjá punktana [•••] í hægra horninu á spjaldinu og síðan smellt á **Hefja úrvinnslu / Loka**.