> ## Knowledge Base Index
> Fetch the complete knowledge base index at: https://adstod.alfred.is/sitemap.xml
> Use this file to discover available pages before exploring further.
> Pure-Markdown content can be obtained by appending a '.md' suffix to the content URLs listed in the sitemap (without the trailing slash).

# Unndís

### Hvað er Unndís?
Unndís er verkefni á vegum Vinnumálastofnunar þar sem fyrirtæki fá ráðgjöf, fræðslu og eftirfylgd til að taka þátt og virkja krafta fólks sem hingað til hefur átt erfitt með að finna störf við hæfi. 

Fólk sem á erfitt með að vinna í fullu starfi getur blómstrað í hlutastarfi. Frá og með haustinu 2025 verða breytingar á örorkulífeyriskerfinu sem skapa ný tækifæri fyrir þennan hóp. Þessar breytingar kalla á fjölbreyttara framboð hlutastarfa og þar kemur Unndís til skjalanna. 

Við hjá Alfreð hvetjum fyrirtæki til að kynna sér verkefnið betur [__hér__](https://island.is/fjolgun-hlutastarfa).  
![](https://storage.crisp.chat/users/helpdesk/website/-/d/7/5/8/d7588bd1612b6800/unndis_1bka26s.jpg =340xauto)
### Þátttaka fyrirtækja 
Vinnumálastofnun metur stöðu fyrirtækja sem vilja vera með í verkefninu, veitir þeim  ráðgjöf, fræðslu og endurgjöf. 

Alfreð býður þeim fyrirtækjum sem standast kröfur Unndísar hjá Vinnumálastofnun að merkja vinnustaðaprófílinn sinn með Unndísar lógóinu. Einnig merkja fyrirtækin auglýst störf með starfstegundinni ‘Unndís’ til að auðvelda notendum að finna þau störf sem falla undir verkefnið.


### Hvernig merki ég auglýsinguna mína?
Til að merkja störf sem falla undir verkefnið þá nægir að velja ‘Unndís’ sem starfstegund þegar auglýsingin er stofnuð, eins og við sýnum hér: 


![](https://storage.crisp.chat/users/helpdesk/website/-/d/7/5/8/d7588bd1612b6800/unndis3_ac0nfy.png)
Þar með munu notendur Alfreðs eiga kost á að skoða starfstegundina “Unndís” til að sjá öll slík störf í boði.


### Hvernig merki ég fyrirtækið mitt með Unndís?
Inn í Alfreð Umsjón er farið í Vinnustaðaprófílar og valið Breyta á viðeigandi prófíl. Undir Viðurkenningar og vottanir er hægt að velja Unndís úr listanum. 

![](https://storage.crisp.chat/users/helpdesk/website/-/d/7/5/8/d7588bd1612b6800/image_c3mkfy.png =510xauto)