> ## Knowledge Base Index
> Fetch the complete knowledge base index at: https://adstod.alfred.is/sitemap.xml
> Use this file to discover available pages before exploring further.
> Pure-Markdown content can be obtained by appending a '.md' suffix to the content URLs listed in the sitemap (without the trailing slash).

# Úrvinnsluborð Alfreðs

Úrvinnsluborðið í Alfreð er alger bylting þegar kemur að úrvinnslu umsókna í ráðningarferlinu. Borðið byggir á Kanban aðferð fyrir verkefnastjórnun og hefur fjóra dálka en leyfir þér að búa til eins marga dálka og þér sýnist.

### Úrvinnsluborðið

1.  **Nýjar**: Allar nýjar umsóknir fara sjálfkrafa í dálkinn „Nýjar“ en þaðan eru umsóknir síðan dregnar (e. drag and drop) yfir í einn af hinum dálkunum sem í boði eru.
2.  **Ólíklegt**: Vinstra megin við „Nýjar“ dálkinn er „Ólíklegt“ dálkurinn.
3.  **Kannski**: Hægra megin við „Nýjar“ dálkinn er síðan „Kannski“ dálkurinn. Þangað er hægt að setja umsóknir sem úrvinnsluaðilanum langar til að skoða betur seinna eða hugsa betur um.
4.  **Viðtal:** Lengst til hægri er síðan síðasti flokkurinn „Viðtal“.
5.  **Fleiri dálkar**: Hægt er að bæta við eins mörgum dálkum til viðbótar við þessa fjóra með því að smella á Nýr dálkur. Hægt er að breyta litnum á dálkum, endurskýra og henda þeim með því að smella á Breyta undir litlu þremur punktunum. Þú getur fært dálkana til og frá eins og þú vilt með því að smella og draga. 


![](https://storage.crisp.chat/users/helpdesk/website/d7588bd1612b6800/urvinnslubord-flott_4glaa.png)

### Samskipti / Senda skilaboð

Í úrvinnsluborðinu geta fyrirtæki átt samskipti við umsækjendur. Fyrirtækin eiga ávallt frumkvæði að samskiptum í úrvinnslukerfinu.

Hægt er að senda skilaboð á alla í einum dálk í einu með því að smella á [•••] efst í dálkinum og smella þar á **Senda skilaboð á alla**. 
Sjá nánar: [Senda skilaboð](/is/article/senda-skilabod-sbfh30/)

Umsækjandinn getur síðan svarað til baka beint úr appinu eða vefnum. Ef notendur eru með kveikt á tilkynningum hjá sér fá þeir tilkynningar á milli 9-22 á daginn.

### Hafna umsóknum

Hægt er að hafna öllum úr einum dálk í einu með því að smella á [•••] efst í dálkinum og smella þar á **Hafna umsóknum**. Þá birtist gluggi með stöðluðum texta sem hægt er að breyta. 
Sjá nánar: [Hafna umsóknum](/is/article/hafna-umsoknum-1wxszwj/)

Hægt er að breyta staðlaða textanum undir **Stillingar -> Stöðluð svarbréf**.

Eftir að búið er að hafna eru umsóknirnar merktar óvirkar og er að finna undir þeirri síu, Óvirkar umsóknir.  



![](https://storage.crisp.chat/users/helpdesk/website/d7588bd1612b6800/ezgifcom-gif-maker_1q7fq1.gif)


### Viðtöl

Hægt er að bjóða umsækjendum í viðtal með einföldum hætti. Ef sveimað er yfir spjaldi umsækjanda er hægt að smella á [•••] og velja Bjóða í starfsviðtal. Einnig er hægt að gera það með því að opna spjaldið og þá birtist takkinn uppi í hægra horninu.

Þegar smellt hefur verið á takkann opnast gluggi þar sem allar helstu upplýsingar um viðtalið eru settar inn.

*   Dagsetning starfsviðtals
*   Tímasetning viðtals (frá og til)
*   Staðsetning viðtals
*   Skilaboð 

Hægt er að búa til staðlaðan texta í **Stillingum** sem birtist sjálfkrafa.

Eftir að viðtalsboð hefur verið sent fær umsækjandi skilaboð í Alfreð appinu sínu og hefur þá möguleika á að svara viðtalsboðinu með þremur möguleikum.

1.  Já ég mæti
2.  Nei, ég afþakka
3.  Óska eftir nýjum tíma

Ef notandi óskar eftir nýjum tíma getur fyrirtækið sent nýtt viðtalsboð á umsækjanda.

### Vídeóviðtöl

Vídeóviðtöl eru frábær leið til þess að kynnast umsækjendum aðeins betur áður en ákveðið er að kalla þau í starfsviðtal. Þú sendir spurningar á umsækjendur sem taka upp svörin sín í appinu. Þú rennir svo yfir svörin þegar þér hentar. Þetta mun spara þér mikinn tíma!

Þú getur gefið vídeóviðtölum einkunn í ráðningarkerfinu. Einkunnaskalinn er sýnilegur við hvert vídeóviðtal. Ef margir fyrirtækjanotendur eru að vinna í úrvinnsluferli umsóknanna þá getur þetta hjálpað mikið þar sem einkunn hvers og eins verður aldrei sýnileg notanda. Meðaleinkunn þeirra sem gefið hafa einkunn sést í spjaldi umsækjanda.

Prófaðu Vídeóviðtöl Alfreðs þér að kostnaðarlausu og boðaðu valda umsækjendur í snertilaust viðtal. 

*   Gríðarlegur tímasparnaður!
*   Frábær leið til að sía frá umsækjendur fyrir starfsviðtöl.
*   Þú getur farið yfir vídeóviðtölin þegar þér hentar.
*   Umsækjandinn getur tekið viðtalið í appinu þegar honum hentar, innan tilsetts skilafrests.
*   Tækifæri til að stækka hóp þeirra sem koma til greina í starfið því ferilskráin segir ekki allt.

### Hæfnismat

Áður en byrjað er að fara yfir umsóknir getur verið gott að skrifa niður atriði sem skipta máli varðandi val á umsækjenda og leggja mat á það hversu miklu máli hvert atriði skiptir. Til dæmis má nota hæfnismatið til að meta mikilvægi menntunar, reynslu, fyrri verkefna og svo frammistöðu í viðtölum.

Til þess að búa til nýtt hæfnismat þá ferð þú einfaldlega undir **Stillingar** > **Hæfnismat**, þú smellir svo á **Nýtt hæfnismat** og hefst handa.

Til þess svo að nýta hæfnismatið við úrvinnslu umsókna þá verður að opna hvern og einn umsækjanda, velja **hæfnismat** og hefjast handa.
Meðaleinkunn hæfnismatsins kemur svo í úrvinnsluborðinu sem gefur þér betri yfirsýn á hæfni umsækjenda og auðveldar þér ákvörðunartöku um ráðningu.

### Ráðning

Að merkja umsækjanda sem **Ráðinn** er eiginleiki í Alfreð ráðningarkerfinu. Þegar umsækjandi er merktur sem ráðinn er hægt að senda beiðni á umsækjanda um að fylla út upplýsingar um stéttarfélag, lífeyrissjóð, séreignarsparnað og launareikning. Sjá nánar: [Merkja umsækjanda ráðinn](/is/article/merkja-umsaekjanda-radinn-dw3kfw/)

Þessar upplýsingar flýta fyrir allri skráningu hjá fyrirtækinu og getur fyrirtækið nálgast þessar upplýsingar í ráðningarborðinu.

### Ljúka úrvinnslu

Mikilvægt er að ljúka úrvinnslu á auglýsingu eftir að ráðningu er lokið. Alfreð sendir skilaboð á alla umsækjendur og lætur vita að úrvinnslu sé lokið sé ekki búið að hafna eða merkja umsækjendur ráðna nú þegar. Sjá nánar: [Úrvinnslutími](/is/article/urvinnslutimi-nmyor2/)