> ## Knowledge Base Index
> Fetch the complete knowledge base index at: https://adstod.alfred.is/sitemap.xml
> Use this file to discover available pages before exploring further.
> Pure-Markdown content can be obtained by appending a '.md' suffix to the content URLs listed in the sitemap (without the trailing slash).

# Úrvinnslutími

Stilla þarf **áætlaðan úrvinnslutíma** við gerð auglýsinga.

Þegar **umsóknarfresti lýkur eða auglýsingu er lokað** tekur við **úrvinnsla** á umsóknum. 

### Fá umsækjendur upplýsingar um úrvinnslutímann?

Umsækjendur fá skilaboð frá Alfreð þegar auglýsingarnar fara í **úrvinnslu** (sjá mynd).

Að úrvinnslutíma loknum verður auglýsingum **lokað** sjálfkrafa og umsækjendur fá skilaboð um að úrvinnslu sé lokið (sjá mynd).

ATH! Umsækjendum sem hafa nú þegar verið hafnað eða boðið í viðtal fá **ekki** skilaboð um að úrvinnslu sé lokið.

![](https://storage.crisp.chat/users/helpdesk/website/478ebab283c1b800/8b76da75-19f6-41a6-b830-c09139_ldbdr3.png)

### Þarf að velja áætlaðan úrvinnslutíma?

Já, við gerð auglýsingar þarf að áætla þann tíma sem þú telur að úrvinnsla umsókna muni taka. Gáðu að því að hægt er að breyta áætluðum úrvinnslutíma á meðan auglýsingin er **virk**. Þetta er gert með því að fara í **Breyta** á auglýsingunni > **Birting og úrvinnsla**.

### Framlengja úrvinnslutíma

Þegar **úrvinnsla er hafin** er hægt að framlengja úrvinnslutíma. Þetta er gert í úrvinnsluborðinu með því að smella á **Úrvinnsla** efst í hægra horni > **Framlengja úrvinnslu**. Hægt er að framlengja úrvinnslu um **1 viku** í senn **3 dögum áður en úrvinnslu lýkur**.

Ekki er hægt að framlengja úrvinnslutíma þegar úrvinnslu er lokið.