> ## Knowledge Base Index
> Fetch the complete knowledge base index at: https://adstod.alfred.is/sitemap.xml
> Use this file to discover available pages before exploring further.
> Pure-Markdown content can be obtained by appending a '.md' suffix to the content URLs listed in the sitemap (without the trailing slash).

# Vakta störf

Þegar nýtt starf kemur inn í vaktina þína færð þú senda tilkynningu í símann þinn um starfið. Hægt er að stilla hvaða tilkynningar þú vilt fá í Stillingum.

Alfreð sendir út tilkynningar um ný störf frá kl. 9:00 á morgnanna til 22:00 á kvöldin.

### Vakt á störfum eftir starfsmerkingum

Það er ekkert mál að stilla vaktina í Alfreð **appinu**. Þú einfaldlega smellir á **blýantinn** efst í vinstra horninu á skjánum.

Á **vefnum** smellir þú á **Vaktin** í stikunni > Breyta. Því næst getur þú valið úr starfsmerkingum sem eru flokkaðar eftir starfsgreinum. Þegar þú hefur valið þær merkingar sem henta þér og þínu þekkingarsviði smellir þú einfaldlega á **Vista** og þá hefur þú stillt vaktina þína.

ATH! Vaktin verður að innihalda a.m.k. eina starfsmerkingu úr starfsgreinum svo hægt sé að vakta eftir **starfshlutfalli** eða **staðsetningu**.

### Vakt á störfum eftir starfshlutfalli

Hægt er að vakta störf eftir starfshlutfalli. Í vakt stillingunum í appinu er einfaldlega valið **Starfshlutfall** og merkt við þær tegundir starfa sem notandi vill vakta.

### Vakt á störfum eftir staðsetningu

Í Alfreð appinu er hægt að vakta störf eftir staðsetningu. Landinu er skipt upp í 7 landsvæði:

*   Höfuðborgarsvæðið
*   Reykjanes
*   Norðurland
*   Vestfirðir
*   Vesturland
*   Austurland
*   Suðurland

Innan hvers landsvæðis er síðan hægt að vakta störf eftir póstnúmerum. Í vakt stillingum í appinu er valið **staðsetning** og merkt við þær staðsetningar sem notandi vill vakta.

### Eyða störfum úr vaktinni

Það er lítið mál að henda út störfum úr vaktinni þinni. Þegar þú strýkur yfir starfið frá hægri til vinstri birtist **eyða** hnappur.

Starf hverfur sjálfkrafa úr vaktinni þinni eftir að umsóknarfrestur er liðinn.

Ekki er hægt að setja störf aftur í vaktina sem þú hefur áður hent. En ef starfið er ennþá virkt, getur þú alltaf fundið það með því að nota leitar valmöguleikann undir „Öll störf“.