> ## Knowledge Base Index
> Fetch the complete knowledge base index at: https://adstod.alfred.is/sitemap.xml
> Use this file to discover available pages before exploring further.
> Pure-Markdown content can be obtained by appending a '.md' suffix to the content URLs listed in the sitemap (without the trailing slash).

# Viðtalsboð í dagatal

Þessi valkostur auðveldar notendum að **skrá boðuð starfsviðtöl úr umsjónarkerfi Alfreðs inn í dagatalið sitt**. 

Næst þegar þú boðar umsækjanda til viðtals í gegnum umsjónarkerfi Alfreðs þá færðu **tölvupóst með fundarboði** sem þú getur skráð inn á dagatalið þitt. 


### Viltu fá Viðtalsboð í dagatal? 

Smelltu á **nafnið þitt** efst til hægri í Alfreð Umsjón  → veldu **Skoða prófíl → hakaðu við Viðtalsboð í dagatal**. 

![](https://storage.crisp.chat/users/helpdesk/website/d7588bd1612b6800/screenshot-2024-06-07-at-09375_bm4315.png)

![](https://storage.crisp.chat/users/helpdesk/website/d7588bd1612b6800/img_tfkuu3.png)


### Fundarboð í tölvupósti

Svona gæti viðtalsboðið litið út sem birtist í tölvupóstinum hjá þér:  

![](https://storage.crisp.chat/users/helpdesk/website/d7588bd1612b6800/img2_149prxg.png)

Þetta dæmi sýnir hvernig Viðtalsboð sem sent er í Gmail en kann að birtast á annan veg eftir því hvaða póstforrit þú notar.  

### Uppfærslur á viðtalsboði

**Viðtalsboð í dagatal sendir uppfærslu ef:**
* Þú breytir viðtalstíma í gegnum Alfreð
* Þú afboðar viðtal í gegnum Alfreð

**Viðtalsboð uppfærist EKKI ef:** 
* Umsækjandi biður um nýjan viðtalstíma í gegnum Alfreð
* Umsækjandi hafnar viðtalsboðinu í gegnum Alfreð

ATH! Umsækjandinn er ekki á fundarboðinu
Gáðu að því að viðtalstíminn færist einungis inn þín megin; 
umsækjandinn er ekki aðili að fundarboðinu á þínu dagatali.   


### Viltu hætta að fá Viðtalsboð í dagatal? 

Smelltu á **nafnið þitt** efst til hægri í Alfreð Umsjón → veldu **Skoða prófíl** → taktu hakið af **Viðtalsboð í dagatal**. 
