Greinar um: Námskeið

Stofna námskeiðsauglýsingu

Smelltu á Námskeiðsauglýsingar  → + Ný auglýsing efst til hægri. Fylltu út lýsingu á námskeiðinu og veldu myndefni. Fylla þarf út alla stjörnumerkta reiti til að hægt sé að birta auglýsinguna. Þegar auglýsingin er tilbúin smellir þú á Birta

Hægt er að tagga námskeið við fleiri en einn flokk, til dæmis: [Heilsa og lífstíll] + [Sjálfsefling í starfi] o.s.frv.



Myndefni



Forsíðumynd birtist á síðu fyrir námskeiðið sjálft eftir að smellt hefur verið á auglýsinguna.
Myndhlutfall er 2:1.
Sjá dæmi hvernig forsíðumynd birtist:



Mynd á auglýsingaspjaldi birtist á spjaldinu fyrir námskeiðið.
Myndhlutfall er 4:3. 
Sjá dæmi um mynd á auglýsingaspjaldi:



Þetta má vera sama myndin.

Birtingartími



Þú velur hversu marga daga auglýsingin á að birtast og greiðir þá daga fyrirfram.

Lengja birtingatíma



Ef þú vilt lengja birtingartíma auglýsingarinnar þá velur þú viðkomandi námskeið, smellir á Breyta og bætir þeim dögum við birtingartímann sem þú vilt.

Birta auglýsingu



Þú þarft að smella á Birta til að búa til auglýsinguna. Ef þér snýst hugur og hættir við er hægt að smella á Loka. Gáðu að því að þá vistast upplýsingarnar ekki heldur þarf að byrja aftur frá grunni.




https://alfred.is/namskeid

Uppfært þann: 13/03/2023

Var þessi grein hjálpleg?

Deildu áliti þínu

Hætta við

Takk fyrir!