Greinar um: Umsækjendur

Viðhengi á prófíl

Hlaða upp viðhengjum á prófíl



Þú getur hlaðið upp viðhengjum á prófílinn þinn bæði í appinu og á vefnum. Einnig er hægt að hlaða upp viðhengjum fyrir hverja umsókn fyrir sig.

Til þess að sækja um starf er gríðarlega mikilvægt að vera búin að velja þau viðhengi sem eiga að fylgja með umsókn þinni, líkt og ferilskrá og kynningarbréf eða önnur skjöl sem þú telur að hjálpi til við að meta hæfni þína.

Sjá fyrirtæki öll viðhengi á prófílnum mínum?



Fyrirtæki sjá aðeins þau viðhengi sem send eru með hverri umsókn, þau sjá ekki þau viðhengi sem eru á prófílnum þínum.

Skjöl sem hlaðin eru inn beint þegar sótt er um starf tengjast við prófílinn þinn til þess að þú getir notað þau aftur og hægt er að eyða þeim úr prófílnum.

Hvað get ég verið með mörg viðhengin á prófílnum mínum?



Hægt er að setja inn 10 skjöl í Alfreð prófílinn og er hámarksstærð þeirra 10 MB.

Hvernig eyði ég viðhengjum?



Með því að sveima yfir viðhengið birtist Eyða takki sem þú getur smellt á.

Uppfærast viðhengin?



ATH! Skjöl sem notandi setur inn uppfærast ekki sjálfkrafa ef gerðar eru breytingar á þeim í t.d. Dropbox eða Google Drive. Uppfæra þarf skjölin sem eru í Alfreð prófíl notanda með því að hlaða þeim upp aftur.

Viðhengi uppfærast horki né eyðast í umsóknum sem þegar hafa verið sendar.

Dæmi: Þú sendir umsókn A með viðhengi A. Þú ferð svo í prófílinn, eyðir út A og setur inn viðhengi B og sendir umsókn B með viðhengi B. Umsókn A er áfram með viðhengi A

Uppfært þann: 13/03/2023

Var þessi grein hjálpleg?

Deildu áliti þínu

Hætta við

Takk fyrir!