Rafræn undirritun með Taktikal
Tenging Alfreðs og Taktikal felur í sér uppsetningu á ráðningarsamningi í umsjónarkerfi Alfreðs sem hægt er að senda beint til rafrænnar undirritunar.
Þegar umsækjandi er merktur ráðinn í kerfi Alfreðs er hægt að senda viðkomandi beiðni um að bæta við ráðningarupplýsingum, s.s. kennitölu, upplýsingum um launareikning, lífeyrissjóð o.fl.

Þegar umsækjandinn hefur svo skilað inn ráðningarupplýsingunum er hægt að velja sniðmát af samning sem fyllist sjálfkrafa út með þeim upplýsingum sem umsækjandinn hefur skilað.


Að því loknu má yfirfara samninginn og senda sem PDF-skjal í gegnum kerfi Taktikal til undirritunar hjá báðum aðilum ráðningarsamningsins.
Þessi lausn er hentug fyrir atvinnurekendur sem afgreiða fjölda ráðningarsamninga, auðveldar utanumhald og sparar tíma.
Innifalið í tengingu Alfreðs við Taktikal eru uppsetning á tveimur sniðmátum fyrir rafræna ráðningarsamninga.
Gjaldskrá Alfreðs
- Tengigjald 20.000 kr. + vsk. (fyrir 2 sniðmát).
- Mánaðargjald fyrir tengingu við Alfreð er 3.500 kr. + vsk.
- Aukasniðmát 2.500 kr. + vsk.
Sniðmát fyrir ráðningarsamninga sendast á alfred@alfred.is
Óskir um aðgang að Taktikal sendast á hallo@taktikal.is
Uppfært þann: 01/10/2026
Takk fyrir!
