Greinar um: Fyrirtæki

Að búa til auglýsingu

Ný auglýsing



Smelltu á Ný auglýsing takkann undir Auglýsingar í umsjónarkerfinu .

Fyrst þarf að velja hvernig þú óskar eftir að taka við umsóknum, með úrvinnsluborði Alfreðs eða vefslóð.

1. Grunnupplýsingar


Settu inn lýsandi starfstitil
Veldu vinnustaðarprófílinn
Settu inn heimilisfang starfsstöðvar
Settu inn starfstegund, t.d. hlutastarf eða sumarstarf

2. Birting og úrvinnsla


Birting hefst: Hægt er að velja dag í framtíðinni til þess að birta auglýsinguna eða nota sjálfgefnu dagsetninguna til þess að birta strax.
Settu inn umsóknarfrest eða veldu "Engan umsóknarfrest" ef þú vilt geta slökkt á auglýsingunni þegar þér hentar (það er ekki hægt ef þú setur umsóknarfrest).
Áætlaður úrvinnslutími: Veldu tímann (1 - 6 vikur) sem þú áætlar að þú þurfir til þess að vinna úr umsóknum. Það er hægt að breyta þessum stillingum eftir birtingu.

3. Starfslýsing


Um starfið: Skrifaðu lýsandi texta um starfið
Helstu verkefni og ábyrgð
Menntunar og hæfniskröfur
Fríðindi í starfi
Aðrar upplýsingar

4. Starfsmerkingar


Veldu a.m.k. eina starfsmerkingu til þess að sem flestir sem gætu haft áhuga á starfinu fái tilkynningu um nýtt starf með þeim starfsmerkingum sem þeir vakta.
Notaðu bláu stikuna til þess að velja yfirflokk og leita í öllum eða notaðu leitarstikuna hægra megin til þess að leita eftir stikkorði.
Fyrir ofan starfsmerkingarnar er gluggi sem kemur með tillögur að fleiri starfsmerkingum eftir þeim sem þegar hafi verið valdar. Með því að sveima yfir starfsmerkinguna sést í hvaða flokki þau eru.
Með því að smella á valdar starfsmerkingar er hægt að fara yfir hvaða starfsmerkingar hafa verið valdar nú þegar.

5. Umhverfi og hópar


Vinnuumhverfi og Hentugt fyrir: Hér er hægt að taka fram ef starfið hentar sérstaklega vel fyrir ákveðna hópa samfélagsins eða að vinnuumhverfið bjóði upp á ákveðna hluti.

6. Hæfni


Tungumálakunnátta: Ef umsækjendur þurfa að kunna ákveðin tungumál þá er hægt að gera skil á þeim hér.
Hæfni: Að velja viðeigandi hæfni fyrir starfið auðveldar notendum að átta sig á því til hvers er ætlast af þeim og hvort þeir telji sig hafa þá hæfni sem þarf.

7. Aukaspurningar: Bara í boði ef verið er að nota úrvinnsluborð Alfreðs.


Aukaspurningar eru tilvalin leið til að fá nánari upplýsingar frá umsækjendum. Í úrvinnsluborðinu er hægt að nota sigtið til að sía út umsóknir eftir því hvernig umsækjendur svara aukaspurningunum.

https://alfred.is/

Uppfært þann: 28/02/2023

Var þessi grein hjálpleg?

Deildu áliti þínu

Hætta við

Takk fyrir!