Viðtalsboð í dagatal
Þessi valkostur auðveldar notendum að skrá boðuð starfsviðtöl úr umsjónarkerfi Alfreðs inn í dagatalið sitt.
Næst þegar þú boðar umsækjanda til viðtals í gegnum umsjónarkerfi Alfreðs þá færðu tölvupóst með fundarboði sem þú getur skráð inn á dagatalið þitt.
Viltu fá Viðtalsboð í dagatal?
Smelltu á nafnið þitt efst til hægri í Alfreð Umsjón → veldu Skoða prófíl → hakaðu við Viðtalsboð í dagatal.


Fundarboð í tölvupósti
Svona gæti viðtalsboðið litið út sem birtist í tölvupóstinum hjá þér:

Þetta dæmi sýnir hvernig Viðtalsboð sem sent er í Gmail en kann að birtast á annan veg eftir því hvaða póstforrit þú notar.
Uppfærslur á viðtalsboði
Viðtalsboð í dagatal sendir uppfærslu ef:
- Þú breytir viðtalstíma í gegnum Alfreð
- Þú afboðar viðtal í gegnum Alfreð
Viðtalsboð uppfærist EKKI ef:
- Umsækjandi biður um nýjan viðtalstíma í gegnum Alfreð
- Umsækjandi hafnar viðtalsboðinu í gegnum Alfreð
ATH! Umsækjandinn er ekki á fundarboðinu
Gáðu að því að viðtalstíminn færist einungis inn þín megin;
umsækjandinn er ekki aðili að fundarboðinu á þínu dagatali.
Viltu hætta að fá Viðtalsboð í dagatal?
Smelltu á nafnið þitt efst til hægri í Alfreð Umsjón → veldu Skoða prófíl → taktu hakið af Viðtalsboð í dagatal.
Uppfært þann: 28/10/2025
Takk fyrir!
