Greinar um: Fyrirtæki

Að búa til auglýsingu

Ný auglýsing



Smelltu á Ný auglýsing takkann undir Auglýsingar í umsjónarkerfinu.

Veldu prófíl sem á að tengjast auglýsingunni


Ef fyrirtækið er bara með einn prófíl er hann sjálfkrafa valinn.
Ef þú hefur ekki stofnað auglýsingu áður eða vilt búa til nýjan vinnustaðaprófíl byrjar þú á því að skrá helstu upplýsingar um vinnustaðinn (nafn, lógó og lýsingu).

Skref 1: Búa til auglýsingu



Fylltu inn nauðsynlegar upplýsingar um starfið


Myndefni í auglýsingu: veldu hvaða mynd birtist efst í auglýsingunni og hvernig auglýsingin birtist þegar þú eða aðrir deila auglýsingunni á samfélagsmiðlum.
Titill auglýsingar: Settu inn lýsandi starfstitil.
Starfslýsing: Skrifaðu starfslýsingu. Þú getur einnig bætt við nýjum flokki með þínum titli og texta.
Tungumál: Að merkja starfsauglýsingu með tungumálakunnáttu hjálpar umsækjendum að sjá hvaða hæfnisviðmið þarf að uppfylla.
Starfsstöð: Hvar er starfið staðsett?
Starfstegund: Fullt starf, hlutastarf, o.s.frv.
Starfsmerkingar: Veldu 1-5 starfsmerkingu. Alfreð sendir öllum notendum sem vakta þessar starfsmerkingar skilaboð um að starfið sé laust.

Fleiri valmöguleikar við að fylla út auglýsingu


Hæfni: Að velja viðeigandi hæfni fyrir starfið auðveldar notendum að átta sig á því til hvers er ætlast af þeim og hvort þeir telji sig hafa þá hæfni sem þarf.
Launakjör.
Vinnustaðurinn: Hér er hægt að taka fram ef starfið hentar sérstaklega vel fyrir ákveðna hópa samfélagsins eða að vinnuumhverfið bjóði upp á ákveðna hluti.

Skref 2: Birtingatími og úrvinnsla



Hvernig viltu taka á móti umsóknum?


Veldu hvort þú viljir taka á móti umsóknum í gegnum Alfreð eða með vefslóð.

Ef þú velur að nota Alfreð þá getur þú tengt aukaspurningar við auglýsinguna.

Birtingartími og úrvinnsla


Veldu dag til að birta auglýsinguna og umsóknarfrest. Athugið að ef umsóknarfrestur er valinn er ekki æskilegt að stytta hann eftir á. Dagsetning umsóknarfrests er seinasti dagur sem aðilar geta sótt um starfið. Aðilar hafa því tækifæri til að sækja um starfið til klukkan 23:59:59 þess dags.
Sé enginn umsóknarfrestur valinn má taka auglýsingu úr birtingu hvenær sem er eða hann lifir út hámarks birtingartímann, 6 vikur.

Úrvinnslutími: Alfreð upplýsir umsækjendur um áætlaðan úrvinnslutíma.

Skref 3: Aukaþjónusta



Síðasta skrefið - hér er hægt að kaupa aukaþjónustu áður en þú heldur áfram í birtingu.


https://alfred.is/

Uppfært þann: 21/10/2024

Var þessi grein hjálpleg?

Deildu áliti þínu

Hætta við

Takk fyrir!