Greinar um: Fyrirtæki

Úrvinnsluborð Alfreðs

Úrvinnsluborðið í Alfreð er alger bylting þegar kemur að úrvinnslu umsókna í ráðningarferlinu. Borðið byggir á Kanban aðferð fyrir verkefnastjórnun og hefur fjóra dálka en leyfir þér að búa til eins marga dálka og þér sýnist.

Úrvinnsluborðið



Nýjar: Allar nýjar umsóknir fara sjálfkrafa í dálkinn „Nýjar“ en þaðan eru umsóknir síðan dregnar (e. drag and drop) yfir í einn af hinum dálkunum sem í boði eru.
Ólíklegt: Vinstra megin við „Nýjar“ dálkinn er „Ólíklegt“ dálkurinn.
Kannski: Hægra megin við „Nýjar“ dálkinn er síðan „Kannski“ dálkurinn. Þangað er hægt að setja umsóknir sem úrvinnsluaðilanum langar til að skoða betur seinna eða hugsa betur um.
Viðtal: Lengst til hægri er síðan síðasti flokkurinn „Viðtal“.
Fleiri dálkar: Hægt er að bæta við eins mörgum dálkum til viðbótar við þessa fjóra með því að smella á Nýr dálkur. Hægt er að breyta litnum á dálkum, endurskýra og henda þeim með því að smella á Breyta undir litlu þremur punktunum. Þú getur fært dálkana til og frá eins og þú vilt með því að smella og draga.




Samskipti / Senda skilaboð



Í úrvinnsluborðinu geta fyrirtæki átt samskipti við umsækjendur. Fyrirtækin eiga ávallt frumkvæði að samskiptum í úrvinnslukerfinu.

Hægt er að senda skilaboð á alla í einum dálk í einu með því að smella á [•••] efst í dálkinum og smella þar á Senda skilaboð á alla.
Sjá nánar: Senda skilaboð

Umsækjandinn getur síðan svarað til baka beint úr appinu eða vefnum. Ef notendur eru með kveikt á tilkynningum hjá sér fá þeir tilkynningar á milli 9-22 á daginn.

Hafna umsóknum



Hægt er að hafna öllum úr einum dálk í einu með því að smella á [•••] efst í dálkinum og smella þar á Hafna umsóknum. Þá birtist gluggi með stöðluðum texta sem hægt er að breyta.
Sjá nánar: Hafna umsóknum

Hægt er að breyta staðlaða textanum undir Stillingar -> Stöðluð svarbréf.

Eftir að búið er að hafna eru umsóknirnar merktar óvirkar og er að finna undir þeirri síu, Óvirkar umsóknir.






Viðtöl



Hægt er að bjóða umsækjendum í viðtal með einföldum hætti. Ef sveimað er yfir spjaldi umsækjanda er hægt að smella á [•••] og velja Bjóða í starfsviðtal. Einnig er hægt að gera það með því að opna spjaldið og þá birtist takkinn uppi í hægra horninu.

Þegar smellt hefur verið á takkann opnast gluggi þar sem allar helstu upplýsingar um viðtalið eru settar inn.

Dagsetning starfsviðtals
Tímasetning viðtals (frá og til)
Staðsetning viðtals
Skilaboð

Hægt er að búa til staðlaðan texta í Stillingum sem birtist sjálfkrafa.

Eftir að viðtalsboð hefur verið sent fær umsækjandi skilaboð í Alfreð appinu sínu og hefur þá möguleika á að svara viðtalsboðinu með þremur möguleikum.

Já ég mæti
Nei, ég afþakka
Óska eftir nýjum tíma

Ef notandi óskar eftir nýjum tíma getur fyrirtækið sent nýtt viðtalsboð á umsækjanda.

Vídeóviðtöl



Vídeóviðtöl eru frábær leið til þess að kynnast umsækjendum aðeins betur áður en ákveðið er að kalla þau í starfsviðtal. Þú sendir spurningar á umsækjendur sem taka upp svörin sín í appinu. Þú rennir svo yfir svörin þegar þér hentar. Þetta mun spara þér mikinn tíma!

Þú getur gefið vídeóviðtölum einkunn í ráðningarkerfinu. Einkunnaskalinn er sýnilegur við hvert vídeóviðtal. Ef margir fyrirtækjanotendur eru að vinna í úrvinnsluferli umsóknanna þá getur þetta hjálpað mikið þar sem einkunn hvers og eins verður aldrei sýnileg notanda. Meðaleinkunn þeirra sem gefið hafa einkunn sést í spjaldi umsækjanda.

Prófaðu Vídeóviðtöl Alfreðs þér að kostnaðarlausu og boðaðu valda umsækjendur í snertilaust viðtal. 

Gríðarlegur tímasparnaður!
Frábær leið til að sía frá umsækjendur fyrir starfsviðtöl.
Þú getur farið yfir vídeóviðtölin þegar þér hentar.
Umsækjandinn getur tekið viðtalið í appinu þegar honum hentar, innan tilsetts skilafrests.
Tækifæri til að stækka hóp þeirra sem koma til greina í starfið því ferilskráin segir ekki allt.

Hæfnismat



Áður en byrjað er að fara yfir umsóknir getur verið gott að skrifa niður atriði sem skipta máli varðandi val á umsækjenda og leggja mat á það hversu miklu máli hvert atriði skiptir. Til dæmis má nota hæfnismatið til að meta mikilvægi menntunar, reynslu, fyrri verkefna og svo frammistöðu í viðtölum.

Til þess að búa til nýtt hæfnismat þá ferð þú einfaldlega undir Stillingar > Hæfnismat, þú smellir svo á Nýtt hæfnismat og hefst handa.

Til þess svo að nýta hæfnismatið við úrvinnslu umsókna þá verður að opna hvern og einn umsækjanda, velja hæfnismat og hefjast handa.
Meðaleinkunn hæfnismatsins kemur svo í úrvinnsluborðinu sem gefur þér betri yfirsýn á hæfni umsækjenda og auðveldar þér ákvörðunartöku um ráðningu.

Ráðning



Að merkja umsækjanda sem Ráðinn er eiginleiki í Alfreð ráðningarkerfinu. Þegar umsækjandi er merktur sem ráðinn er hægt að senda beiðni á umsækjanda um að fylla út upplýsingar um stéttarfélag, lífeyrissjóð, séreignarsparnað og launareikning. Sjá nánar: Merkja umsækjanda ráðinn

Þessar upplýsingar flýta fyrir allri skráningu hjá fyrirtækinu og getur fyrirtækið nálgast þessar upplýsingar í ráðningarborðinu.

Ljúka úrvinnslu



Mikilvægt er að ljúka úrvinnslu á auglýsingu eftir að ráðningu er lokið. Alfreð sendir skilaboð á alla umsækjendur og lætur vita að úrvinnslu sé lokið sé ekki búið að hafna eða merkja umsækjendur ráðna nú þegar. Sjá nánar: Úrvinnslutími

Uppfært þann: 09/10/2023

Var þessi grein hjálpleg?

Deildu áliti þínu

Hætta við

Takk fyrir!