Að skrifa starfslýsingu fyrir Hæfnileit sem skilar góðri niðurstöðu
Hæfnileit Alfreðs fer yfir starfslýsingar og notar þær til að para við skráða notendur út frá menntun, reynslu, hæfni o.s.frv.. Því skýrari sem lýsingin er því nákvæmari verður pörunin og röðun kandídata í starfið.
Gátlisti
Farðu yfir þennan lista. Ef öll atriðin eru í lagi er lýsingin tilbúin til að keyra Hæfnileit.
- Starfstitillinn er skýr og auðskilinn – ekki „snillingur“, „töframaður“ eða sértækt vinnustaðarmál.
- Starfslýsingin er meira en ein eða tvær setningar. Hún inniheldur lýsingu á starfssviði og að minnsta kosti þrjár skýrar kröfur um færni, hæfni eða þekkingu.
- Menntunarkröfur tilgreina bæði námsgráðu og svið menntunar.
- Starfsreynsla tilgreinir árafjölda og æskilega reynslu og ábyrgð í fyrri störfum.
- Starfskröfur eru settar fram sem sjálfstæðir punktar — ekki ein löng setning með fjórum kröfum í einu.
- Það er skýrt hvaða kröfur eru nauðsynlegar og hverjar eru kostur.
- Verkleg hæfni (hard skills)- áþreifanleg verkfæri, kerfi eða aðferðir.
- Samskiptahæfni (soft skills) er lýst með hegðun eða útkomu — ekki orðum eins og „gleðigjafi“.
- Starfslýsingin getur verið á íslensku eða ensku en öll lýsingin þarf að vera á sama tungumáli.
- Listi yfir starfskröfur er hnitmiðaður — 5 til 10 atriði, ekki 30.
Hvað Hæfnileit Alfreðs dregur út úr starfslýsingu
Þegar þú keyrir inn starfslýsingu þá greinir Hæfnileit Alfreðs textann og sigtar út mikilvægar leitarforsendur. Ef þú bætir inn upplýsingum um önnur atriði sem ekki tilheyra þessum reitum þá getur það nýst við að ná betra samhengi — en aðeins þessir reitir nýtast við pörun.
Reitur | Hvað er þetta? | Dæmi |
|---|---|---|
Starfstitill | Hlutverkið sjálft, í texta | „Bakendaforritari“ |
Atvinnugrein | Iðnaður eða viðskiptasvið | „Heilbrigðistækni, B2B SaaS“ |
Menntun | Námsgráða + fagsvið | „MS-gráða í tölvunarfræði“ |
Reynsla | Ábyrgðarsvið, atvinnugrein, ár | „5 ár sem bakendaforritari í fjármálageiranum“ |
Tæknikröfur | Áþreifanleg færni (hard skills), hver flokkuð sem nauðsynleg eða valfrjáls | „Python (nauðsynlegt), Kubernetes (valfrjálst)“ |
Mannleg færni | Samskiptahæfileikar (soft skills), flokkað sem nauðsynlegt eða valfrjálst | „Samhæfing milli teyma (nauðsynlegt)“ |
Kröfur | Hver kröfusetning dregin út úr texta | „Nauðsynleg reynsla af framleiðsluuppfærslu.“ |
Lýsing | Frjáls lýsing á starfssviði | Meginhluti starfslýsingarinnar |
Nokkur mikilvæg atriði um hvernig þessi útdráttur virkar:
- Námsgráður eru flokkaðar í fastan lista: stutt háskólanám, BS-gráða, MS-gráða, doktorsgráða, eða ekkert. Stúdentspróf og óskilgreind skírteini falla undir „ekkert“ og teljast ekki sem menntunarkrafa.
- Kröfur eru teknar nákvæmlega eins og þær eru skrifaðar. Þær eru ekki umorðaðar. Ef krafa er óljóst orðuð í starfslýsingunni þá er hún áfram óljós í leitarforsendum.
- Best er að tilgreina minnst þrennar starfskröfur. Starfslýsingar með færri kröfum skila lægri gæðum í pörun.
- Hæfnileit getur unnið með mismunandi framsetningu á hæfni eða færni. Þó að hæfni sé skráð á mismunandi vegu í starfslýsingum þínum („JS“, „JavaScript“, „javascript forritari“) þá sér kerfið það sem eina og sömu hæfni — en óljós orð eins og „góður í tölvum“ eru ekki tengjanleg og nýtast ekki.
Dæmi um veika og sterka starfslýsingu
Veik útgáfa
„Töframaður óskast. Við erum hraðvaxandi sprotafyrirtæki að leita að ástríðufullum, áhugasömum starfsmannili í frábæra teymið okkar. Þú vinnur við áhugaverð verkefni, mest tengt skýjalausnum — eitthvað Python, eitthvað JS, eitthvað fleira. Reynsla æskileg. Próf vel séð. Fjarvinna í boði.“
Hæfnileit Alfreðs hefur ekki úr miklu að moða: óljós titill, engin atvinnugrein, enginn árafjöldi, óljóst með menntun, óskýrar tæknikröfur. Niðurstaðan er léleg pörun og óskýr röðun.
Sterk útgáfa
Bakendaforritari óskast
Við leitum að bakendaforritara í öflugt teymi sem vinnur að samtengingu kerfa upplýsingakerfi sjúkrahúsa.
Kröfur:
- BS- eða MS-gráða í tölvunarfræði, hugbúnaðarverkfræði eða skyldu fagi er nauðsynleg.
- Að lágmarki 5 ára reynsla af bakendaforritun í Python er nauðsynleg.
- Að lágmarki 2 ára reynsla úr heilbrigðistækni, fjármálum eða annarri reglubundinni atvinnugrein er nauðsynleg.
- Reynsla af PostgreSQL, þar með talið hönnun gagnagrunna, er nauðsynleg.
- Rekstrarreynsla af AWS (ECS, RDS, S3, Lambda) er nauðsynleg.
- Þekking á HL7 eða FHIR heilbrigðisstöðlum er kostur.
- Reynsla af því að leiða tæknilega hönnun þvert á teymi er nauðsynleg.
- Reiprennandi enska í tali og riti er nauðsynleg.
Hér fær Hæfnileit Alfreðs nægar upplýsingar: Sterka útgáfan er ekki bara lengri heldur hlaðin nothæfum upplýsingum. Niðurstaðan er góð pörun og skýr röðun.
Algeng mistök — og hvernig á að leiðrétta þau
Í stað þessa | Breyting |
|---|---|
„Töframaður í tækniteymi“ | „Bakendaforritari“ eða „Verkefnastjóri sölu“ — hefðbundinn titill sem fólk þekkir. |
„Reynsla æskileg.“ | „Að lágmarki 4 ára reynsla af bakendaforritun, þar af 2 ár í fjármálageiranum.“ |
„Háskólamenntun æskileg.“ | „BS-gráða í tölvunarfræði eða skyldu fagi er nauðsynleg.“ |
„Sterkur í Python, AWS, Docker og Kubernetes með próf í tölvunarfræði og 5+ ára reynslu.“ | Hver krafa á sína eigin línu — fjórar aðskildar setningar. |
„Góður í skýjalausnum.“ | „Rekstrarreynsla af AWS (Lambda, S3, RDS) er nauðsynleg.“ |
„Liðsspilari.“ | „Þarf að samhæfa vinnu þvert á tvö þróunarteymi og leiða þjálfun nýrra starfsmanna.“ |
„Helst með reynslu af…“ | Notaðu skýr orð: „nauðsynlegt“ eða „kostur“ — ekkert á milli. |
Samantekt
Hæfnileit Alfreðs byggir parar skráða notendur út frá þeirri starfslýsingu sem hún fær úr að moða.
- Gáðu að nákvæmni við skráningu á starfstitli, menntun, reynslu og færni.
- Skráðu starfskröfur, eina í einu sem sjálfstæða heila setningu.
- Merktu skýrt hvað er nauðsynlegt og hvað er valfrjálst.
- Forðastu innanhússmál, skammstafanir og að blanda saman tungumálum.
Vel uppbyggð starfslýsing er nokkrum mínútum lengur í smíðum en getur sparað klukkutíma í úrvinnslu á þeim koma til greina og færir þér nákvæmlega þá kandídata í starfið sem þú ert að leita eftir. Niðurstöðinni fylgir jafnframt einkunn og rökstuðningur fyrir endanlegri ákvörðun um ráðningu.
Uppfært þann: 17/07/2026
Takk fyrir!
