Greinar um: Fyrirtæki

Afrita umsókn á annað starf

Fyrirtæki geta afritað umsóknir og fært yfir á önnur úrvinnsluborð. Hægt er að færa umsóknir á úrvinnsluborð þeirra auglýsinga sem eru annað hvort virkar eða í úrvinnslu.

Þessi virkni gefur kost á að nýta umsóknir til fulls, þó fyrirtækið sé með fleiri starfsauglýsingar í gangi í einu.

Þessi möguleiki hentar einstaklega vel fyrir þau fyrirtæki sem eru með Almenna umsókn, því þá er hægt að færa umsókn yfir í úrvinnsluborð fyrir starf sem umsækjandinn væri tilvalinn í.

Til þess að afrita umsókn



Smelltu á punktana þrjá hjá umsókn > Afrita á annað starf.




Veldu auglýsinguna sem þú vilt afrita umsækjanda á.




Þegar umsækjandi hefur verið afritaður er merki á spjaldinu sem gefur það til kynna.

Uppfært þann: 21/05/2024

Var þessi grein hjálpleg?

Deildu áliti þínu

Hætta við

Takk fyrir!