Bjóða í vídeóviðtöl
Hvernig virka vídeóviðtöl?
Þú sendir spurningar á umsækjendur sem hafa 2 mínútur til þess að svara hverri spurningu með upptöku. Þú rennir svo yfir svörin þegar þér hentar og býður álitlegustu umsækjendunum í starfsviðtal.
Kostir vídeóviðtala
Gríðarlegur tímasparnaður!
Frábær leið til að sía frá umsækjendur fyrir starfsviðtöl.
Þú getur farið yfir vídeóviðtölin þegar þér hentar.
Umsækjandinn getur tekið viðtalið í appinu þegar honum hentar, innan tilsetts skilafrests.
Tækifæri til að stækka hóp þeirra sem koma til greina í starfið því ferilskráin segir ekki allt.
Hvernig býð ég umsækjendum í vídeóviðtal?
Þú getur boðið umsækjendum í vídeóviðtal í úrvinnsluborðinu með því að smella á punktana þrjá [•••] > Bjóða í vídeóviðtal.
Hvernig bý ég til nýtt vídeóviðtal?
Þú getur búið til vídeóviðtal undir Stillingar > Vídeóviðtöl.
Í úrvinnsluborðinu getur þú einnig búið til nýtt vídeóviðtal með því að bjóða í vídeóviðtal (í stað þess að fara fyrst í stillingar).
Gefa vídeóviðtölum einkunn
Þú getur gefið vídeóviðtölum einkunn í Úrvinnsluborðinu. Einkunnaskalinn er sýnilegur við hvert vídeóviðtal.
Ef margir fyrirtækjanotendur eru að vinna í úrvinnslu umsóknan og gefa einkun birtist meðaleinkun þeirra undir vídeóviðtala flipanum.
Hljóðlaust vídeóviðtal
Það kemur einstaka sinnum fyrir að vídeóviðtöl í kerfinu séu hljóðlaus. Þá hefur umsækjandi verið að nota týpu af símtæki sem smáforritið styður ekki fullkomlega.
Hægt er að komast hjá því með því að hægri smella á myndbandið og velja Save video as. Þá er hægt að opna myndbandið úr þeirri möppu sem vistað var í.
Uppfært þann: 28/02/2023
Takk fyrir!