Greinar um: Fyrirtæki

Fylla út vinnustaðaprófíl

Búa til vinnustaðaprófíl


  • Alfreð býður fyrirtækjum upp á að stofna ótakmarkaðan fjölda vinnustaðaprófíla.
  • Vinnustaðaprófílar geta verið fyrirtæki og/eða rekstrareiningar.
  • Tengja þarf hverja auglýsingu við vinnustaðaprófíl.


Eftirfarandi upplýsingar er hægt að birta á vinnustaðaprófíl:


Vinna í prófíl
  • Lógó: Merki vinnustaðarins (lógó) þarf að hlaða upp í formi eins og t.d. jpeg eða png. Hafa ber í huga að merkið birtist ávallt á hvítum grunni.
  • Forsíðumynd: Myndin birtist í öllum auglýsingum sem eru undir vörumerkinu og í vinnustaðaprófílnum. Besta stærð fyrir forsíðumynd er 1200 x 600 px.
  • Nafn fyrirtækis
  • Heimilisfang
  • Símanúmer
  • Um vinnustaðinn: Stuttur, lýsandi texti um vinnustaðinn. Hægt að bæta við slagorði, stofnári, fjölda starfsfólks og kynjahlutfalli.
  • Vefsíða og samfélagsmiðlar: Hér er hægt að bæta við hlekk sem leiðir t.d. inn á heimasíðu fyrirtækisins. Einnig er hægt að auglýsa samfélagsmiðla fyrirtækisins.
  • Útlit prófíls: Hægt er að bæta við einkennislit fyrirtækisins og myndum.
  • Viðurkenningar og vottanir: Ef það vantar viðeigandi vottun eða viðurkenningu í listann sem fyrirtækið þitt hefur fengið má senda beiðni á alfred@alfred.is og við skoðum það að bæta henni við.
  • Viðfangsefni
  • Fríðindi í starfi
  • Tengdir vinnustaðaprófílar: Hægt er að tengja aðra vinnustaðaprófíla til þess að öll störf skráð á þeim vinnustaðaprófílum birtist á aðal vinnustaðaprófílnum.


Greiðsla reikninga
  • Kennitala: Ef reikningur á að berast annarri kennitölu en þeirri sem er skráð undir Stillingum.
  • Netfang fyrir reikninga: Hægt er að fá reikningana tengda vinnustaðaprófilnum senda á annað netfang en er skráð fyrir móttöku reikninga undir Stillingum.
  • Nafn á viðtakanda reikninga
  • Deildir: Deildir eru notaðar þegar fyrirtæki vill fá reikninga skipta upp eftir deildum, t.d. „markaðsdeild“ og „framleiðsludeild“.


Uppfært þann: 18/12/2023

Var þessi grein hjálpleg?

Deildu áliti þínu

Hætta við

Takk fyrir!