Greinar um: Fyrirtæki

Ráðningarupplýsingar

Ráðningarupplýsingar

Fyrirtæki geta haldið áfram að nota Ráðningarkerfi Alfreðs og kallað eftir ráðningarupplýsingum eftir að ráðning er staðfest. Fyrst þarf að búa til lista yfir upplýsingar sem fyrirtækið vill að nýir starfskraftar veiti við upphaf ráðningarsambands. 


Aðeins heimilt stjórnendum

Til að setja saman lista yfir nauðsynlegar ráðningarupplýsingar þarf að hafa stjórnendaaðgang. Stjórnendur bera ábyrgð á því að þær upplýsingar sem óskað er eftir hafi sannarlega þýðingu fyrir starfsemi fyrirtækisins og að ekki sé verið að safna upplýsingum að óþörfu. 


Stillingar → Ráðningarupplýsingar

Stjórnendur skrá sig inn á fyrirtækjaaðgang, opna Stillingar > Almennt og smella á hlekkinn Ráðningarupplýsingar. Þá opnast valblað þar sem eftirfarandi atriði eru forvalin:


- Kennitala
- Lögheimili
- Póstnúmer
- Stéttarfélag
- Lífeyrissjóður
- Hlutfall viðbótarlífeyris
- Hlutfall persónuafsláttar
- Bankanúmer


Hægt er að staðfesta þennan lista, velja hvaða upplýsingar flokkast sem nauðsynlegar og hvaða upplýsingum er valfrjálst að svara. Eins má bæta við fyrirspurnum, t.d. um skóstærð eða fatanúmer ef vinnuveitandinn skaffar starfsfólki einkennis- eða öryggisfatnað.


Hvaða ráðningarupplýsingar þarf þitt fyrirtæki?

Við hjá Alfreð hvetjum stjórnendur til að velja þau atriði sem spurt er um af kostgæfni og kalla ekki eftir upplýsingum að óþörfu. Því styttri sem listinn er — því líklegra er að viðkomandi svari hratt og vel. 


Ráðningarupplýsingar í einum smelli

Þegar listinn er tilbúinn þarf bara að smella á einn hnapp til að kalla eftir samræmdum ráðningarupplýsingum þegar nýr starfskraftur er ráðinn til starfa. 




Tengingar við önnur mannauðskerfi

Um leið og ráðningarupplýsingum hefur verið skilað má færa gögnin yfir í önnur mannauðskerfi sem halda utan um starfsfólk á launaskrá fyrirtækisins. 


Betra utanumhald og yfirsýn

Það gleymist stundum að ganga eftir grunnupplýsingum þegar nýtt fólk er ráðið til starfa. Beiðni um ráðningarupplýsingar í gegnum kerfi Alfreðs er fljótleg og þægileg leið til að halda utan um starfsmannaupplýsingar og tékka í öll boxin frá fyrsta degi.

Uppfært þann: 01/10/2026

Var þessi grein hjálpleg?

Deildu áliti þínu

Hætta við

Takk fyrir!