Greinar um: Fyrirtæki

Tenging við H3 kerfi Advania

Með H3 kerfistengingunni í Alfreð getur þú óskað eftir upplýsingum um launareikning, stéttarfélag, lífeyrissjóð o.s.frv. þegar þú merkir umsækjenda sem ráðinn. Þá eru upplýsingarnar fluttar sjálfkrafa yfir í mannauðskerfi H3.

Að tengjast H3



Til þess að tengjast H3 þarf að útvega tengingarslóðina úr H3 og setja hana, notendanafn og lykilorð inn í Mannauðskerfi undir Stillingar


Að færa umsækjanda yfir í H3



Merkja umsækjanda sem ráðinn og óska eftir ráðningarupplýsingum

Eftir að umsækjandi hefur sent inn upplýsingar þá er smellt á áfram takkann við H3 - Mannauðskerfi Advania


Næst þarf að fylla út í alla stjörnumerkta reiti og senda svo upplýsingarnar áfram í H3


Gjaldskrá



Tengi- og uppsetningargjald sem miðast við 4 tíma af útseldri vinnu.
Mánaðargjald fyrir tenginguna við Alfreð er 3.500 kr. + vsk. Einnig hægt að greiða árlega.

Uppfært þann: 13/03/2023

Var þessi grein hjálpleg?

Deildu áliti þínu

Hætta við

Takk fyrir!