Hæfnileit Alfreðs fyrir fyrirtæki
Hæfnileit (e. Talent Pool) Alfreðs parar starfslýsingu við skráða notendur. Leitin skilar niðurstöðum innan við 48 klst. Hægt er að boða kandídata í viðtöl strax að leit lokinni og klára ráðningarferlið á nokkrum dögum.
Búa til starfslýsingu fyrir Hæfnileit
Smelltu á Ný hæfnileit undir Hæfnileit í umsjónarkerfinu.
Veldu prófíl sem á að tengjast starfslýsingunni
- Ef fyrirtækið er bara með einn prófíl er hann sjálfkrafa valinn.
- Ef ekki er til vinnustaðaprófíll nú þegar eða villt búa til nýjan byrjar þú á því að skrá helstu upplýsingar um vinnustaðinn (nafn, lógó og lýsingu).
Skref 1: Starfslýsing
- Starfsgrein: Veldu viðeigandi starfsgrein.
- Starfstitill: Notaðu hefðbundin og skýran starfstitil.
- Um starfið: Hér skrifar þú kröfur um menntun, reynslu og hæfni, hvaða atvinnugrein starfið á við. Skrifaðu hverja kröfu sem heila setningu. Hver setning verður að sjálfstætt metinni kröfu. Þegar þú þjappar fjórum kröfum í eina setningu meðhöndlar kerfið þær sem eina óljósa kröfu og pörunin verður grófari. Merktu skýrt hvað er nauðsynlegt og hvað er valkvætt.
Sjá nánari leiðbeiningar fyrir starfslýsingu hér: Að skrifa starfslýsingu fyrir Hæfnileit sem skilar góðri niðurstöðu
Skref 2: Upplýsingar
- Starfstegund: Fullt starf, hlutastarf, tímabundið starf. Hægt að haka í fleiri en einn reit.
- Reynsla: Hversu mikil krafa er um fyrri reynslu? Engin, lítil, miðlungs o.s.frv. Hægt að haka í fleiri en einn reit.
- Vinnufyrirkomulag: Fjarvinna, á staðnum, sveigjanlegt. Hægt að haka í fleiri en einn reit.
- Vinnutími: Dagvinna, næturvaktir, helgarvinna. Hægt að haka í fleiri en einn reit.
- Starfsstöð: Hvar er starfið staðsett?
- Lágmarksaldur: Valkvætt, aldursskilyrði hafa einungis áhrif á leitarniðurstöður. Þau birtast hvorki í starfslýsingu né upplýsingum til umsækjenda.
- Tungumál: Gerðu kröfu um tungumál og hvaða hæfnisstig þarf að uppfylla.
- Laun: Launabil hefur einungis áhrif á leitarniðurstöður. Það birtist hvorki í starfslýsingu né upplýsingum til umsækjenda.
Skref 3: Hæfni
Þegar komið er í skref 3 er unnið úr upplýsingum úr skrefi 1 og 2. Hægt er að sjá Samantekt starfslýsingar vinstra megin á skjánum. Gott er að lesa hana yfir og ef eitthvað er ábótavant er hægt að fara til baka og lagfæra. Samskiptahæfni (soft skills) og verkleg hæfni (hard skills) fyllast út sjálfkrafa, gott er að yfirfara hæfnina og hægt er að bæta við og eyða hæfni. Einnig er hægt að velja hvort hæfnin sé nauðsynleg eða komi sér vel.
- Samskiptahæfni (soft skills): Kröfur sem snúa að því að eiga samskipti við annað fólk.
- Verkleg hæfni (hard skills): Kröfur sem snúa að því að framkvæma ákveðin verkefni eða nota tiltekna kunnáttu.
Birting
Þegar búið er að fylla út allar þær upplýsingar sem þarf fyrir starfslýsinguna er komið að því að birta hana. Þegar smellt er á birta byrjar Vel uppbyggð starfslýsing er nokkrum mínútum lengur í smíðum en getur sparað klukkutíma í úrvinnslu á þeim sem koma til greina og færir þér nákvæmlega þá kandídata í starfið sem þú leitar eftir. Leitin skilar niðurstöðum innan við 48 klst, á þessum tíma hafa kandídatar færi á að svara boðinu.
Spurningar og svör:
Hvað kostar Hæfnileit?
Núna er kynningarverð sem er 60.000 kr. Þegar kynningartilboðinu líkur munu viðskiptavinir greiða 10% af mánaðarlaunum starfsins sem um ræðir.
Gildir þetta um öll störf?
Já tilboðið gildir um allar tegundir starfa um allt land.
Hvað ef enginn finnst?
Ef að enginn kandídat finnst í starfið þá getur þú breytt starfslýsingunni þinni yfir í hefðbundna auglýsingu á Alfreð, þér að kostnaðarlausu. Það þarf ekki að hafa samband við okkur, bara að setja inn auglýsinguna og við tryggjum að ekki sé sendur reikningur fyrir auglýsingunni. Athugið að sendur er reikningur fyrir virðisaukandi þjónustu sem keypt er með auglýsingunni.
Hvar finn ég lista yfir þá kandídata sem koma best út og hafa áhuga á að skoða starfið frekar?
Það verður til listi í Umsjónarkerfi Alfreðs með þeim kandídötum sem hafa samþykkt að skoða starfið frekar.
Get ég flutt kandídata úr Alfreðs kerfinu?
Nei, það er ekki hægt að flytja niðurstöður Hæfnileitar yfir í önnur kerfi að svo stöddu.
Hvernig fara samskipti fram við kandídata?
Samskipti fara fram eins og í almennum ráðningum. Mikilvægt er í Hæfnileit, eins og öðrum ráðningum, að láta kandídata vita ef þeir fá ekki starfið.
Hversu ýtarleg þarf starfslýsing að vera?
Því ýtarlegri sem starfslýsingin er því betri pörun kemur úr leitinni.
Uppfært þann: 17/07/2026
Takk fyrir!
