Greinar um: Fyrirtæki

Umsóknarfrestur eða enginn umsóknarfrestur?

Við gerð auglýsinga þarf annað hvort að velja dagsetningu umsóknarfrests eða velja að hafa engan umsóknarfrest.



Umsóknarfrestur



Ef þú birtir auglýsingu með umsóknarfresti þá getur þú ekki stytt hann eða slökkt á auglýsingunni áður en umsóknarfresturinn rennur út.

Ef þú vilt framlengja umsóknarfrestinn getur þú gert það inn í Umsjón.

Umsóknarfrestur þarf í flestum tilvikum ekki að vera lengri en 1-2 vikur. Hins vegar má umsóknarfrestur vera allt að 42 dagar eða 6 vikur.

Það er mikilvægt að fyrirtæki virði umsóknarfrestinn sem þau birta upphaflega. Ástæðan fyrir þessu er að stór hópur fólks fær tilkynningu um starfið þar sem umsóknarfrestur er auglýstur og margir þeirra stilla á áminningu svo þeir nái að sækja um áður en fresturinn rennur út.

Athugið að dagsetning umsóknarfrests er seinasti dagur sem aðilar geta sótt um starfið. Aðilar hafa því tækifæri til að sækja um starfið til klukkan 23:59:59 þess dags.

Enginn umsóknarfrestur



Ef þú birtir auglýsingu án umsóknarfrests þá geturðu tekið auglýsinguna úr birtingu þegar þér hentar eða leyft henni að lifa út hámarkið, 6 vikur eða 42 daga.

Einnig geturðu sett umsóknarfrest eftir á en þegar dagsetning er valin þá er ekki hægt að loka auglýsingunni fyrir þá dagsetningu.

Til þess að loka auglýsingu sem hefur engann umsóknarfrest er smellt á litlu þrjá punktana [•••] í hægra horninu á spjaldinu og síðan smellt á Hefja úrvinnslu / Loka.

Uppfært þann: 07/12/2023

Var þessi grein hjálpleg?

Deildu áliti þínu

Hætta við

Takk fyrir!